Sjóðurinn fjárfestir einkum í sjóðum sem fjárfesta í innlendum skuldabréfum og innlánum.
Góðir sjóðir - ábyrg ávöxtun í allra þágu
- Meginmarkmið Íslandssjóða er að tryggja viðskiptavinum góða langtímaávöxtun.
- Við vitum að umhverfismál (U), félagslegir þættir (F) og stjórnarhættir (S) hafa áhrif á velgengni fyrirtækja og þar með einnig áhættu og ávöxtun af fjárfestingum.
- Þess vegna tökum við tillit til UFS þátta í öllum okkar ákvörðunum um fjárfestingar og höfum um leið jákvæð áhrif á umhverfi okkar og samfélag.
Starfsfólk Íslandssjóða notar aðferðir ábyrgra fjárfestinga í allri eignastýringu. Íslandssjóðir hf. undirritaði samstarfssamning við PRI (Principles for Responsible Investing) í desember 2017 og er einn af stofnaðilum IcelandSIF (Iceland Sustainable Investment Forum).
Blandaðir sjóðir
Blandaðir sjóðir Íslandssjóða leggja áherslu á dreifð eignasöfn þar sem áhættunni er dreift á milli nokkurra eignaflokka á borð við hlutabréf, skuldabréf og innlán.
Sjóðurinn fjárfestir einkum í sjóðum sem fjárfesta í innlendum skuldabréfum, hlutabréfum og innlánum. Sjóðurinn fjárfestir allt að 15% í hlutabréfum.
Sjóðurinn fjárfestir einkum í sjóðum sem fjárfesta í innlendum skuldabréfum, hlutabréfum og innlánum. Sjóðurinn fjárfestir allt að 30% í hlutabréfum.
Sjóðurinn fjárfestir einkum í sjóðum sem fjárfesta í innlendum skuldabréfum, hlutabréfum og innlánum. Sjóðurinn fjárfestir allt að 50% í hlutabréfum.
Sjóðurinn fjárfestir einkum í sjóðum sem fjárfesta í hlutabréfum eða innlendum skuldabréfum og innlánum. Sjóðurinn fjárfestir að lágmarki 15% og allt að 75% í hlutabréfum.
Sjóðurinn fjárfestir einkum í erlendum sjóðum sem fjárfesta í hlutabréfum, skuldabréfum og innlánum. Grunnmynt sjóðsins er í íslenskum krónum.
Sjóðurinn fjárfestir einkum í erlendum sjóðum sem fjárfesta í hlutabréfum, skuldabréfum og innlánum. Grunnmynt sjóðsins er í bandaríkjadollar
Sjóðurinn fjárfestir einkum í sjóðum sem fjárfesta í innlendum og erlendum skuldabréfum sem og hlutabréfum eða öðrum fjármálagerningum tengdum verðbréfum.
Sjóðurinn fjárfestir einkum í sjóðum sem fjárfesta í skuldabréfum með ábyrgð ríkissjóðs, ábyrgð sveitarfélaga, öðrum skuldabréfum og innlánum fjármálafyrirtækja.
Skuldabréfasjóðir
Skuldabréfasjóðir Íslandssjóða einblína á fjárfestingar í innlendum skuldabréfum. Þau geta verið bæði verðtryggð eða óverðtryggð og með eða án ábyrgð ríkissjóðs eftir því hvaða sjóður er valinn.
Góður og hagkvæmur kostur til að ávaxta sparnað til skamms tíma. Sjóðurinn er sérhæfður sjóður fyrir almenna fjárfesta sem fjárfestir aðallega í innlánum fjármálastofnana.
Góður og hagkvæmur kostur til að ávaxta fé í þrjá mánuði eða lengur. Sjóðurinn fjárfestir aðallega í innlánum, ríkisvíxlum og ríkisskuldabréfum.
Sjóðurinn fjárfestir í skuldabréfum og víxlum með ábyrgð ríkissjóðs og innlánum fjármálastofnana. Sjóðurinn hentar fjárfestingum til eins árs eða lengur.
Sjóðurinn fjárfestir eingöngu í skuldabréfum með ábyrgð ríkissjóðs og innlánum fjármálastofnana. Sjóðurinn hentar fjárfestingum til tveggja ára eða lengur.
Sjóðurinn fjárfestir eingöngu í skuldabréfum með ábyrgð ríkissjóðs og innlánum fjármálastofnana. Sjóðurinn hentar fjárfestingum til þriggja ára eða lengur.
Sjóðurinn er sérhæfður sjóður fyrir almenna fjárfesta sem fjárfestir í ríkisskuldabréfum, skuldabréfum sveitarfélaga, skuldabréfum, víxlum og innlánum fjármálafyrirtækja ásamt öðrum skuldabréfum fyrirtækja og stofnana.
Sjóðurinn er sérhæfður sjóður fyrir almenna fjárfesta sem fjárfestir í óverðtryggðum ríkisskuldabréfum og innlánum fjármálafyrirtækja.
Sjóðurinn er sérhæfður sjóður fyrir almenna fjárfesta sem fjárfestir í verðtryggðum sértryggðum skuldabréfum, verðtryggðum ríkisskuldabréfum og innlánum fjármálafyrirtækja.
Sjóðurinn er valkostur fyrir sparifjáreigendur sem leggja áherslu á umhverfis- og samfélagsmál án þess að slá af kröfum um samkeppnishæfa langtíma ávöxtun og hentar sjóðurinn fjárfestum sem vilja ávaxta fé í þrjú ár eða lengur. Sjóðurinn fjárfestir í grænum skuldabréfum og ríkisskuldabréfum.
Hlutabréfasjóðir
Hlutabréfasjóðir Íslandssjóða fjárfesta fyrst og fremst í innlendum hlutabréfum.
Sjóðurinn er sérhæfður sjóður fyrir almenna fjárfesta sem fjárfestir í hlutabréfum skráðum í Kauphöll Íslands eða öðrum fjármálagerningum tengdum hlutabréfum.
Sjóðurinn er vísitölusjóður og fylgir Úrvalsvísitölu Kauphallar Íslands með vægisþaki (OMXI10 Cap ISK) að teknu tilliti til kostnaðar.
Sjóðurinn er sjóðasjóður sem fjárfestir í erlendum hlutabréfasjóðum. Sjóðurinn leitast við að ná betri ávöxtun en MSCI heimsvísitalan.
Yfirlit sjóða
Hér sérðu yfirlit yfir alla sjóði Íslandssjóða og nafnávöxtun þeirra. Smelltu á "Kaupa í sjóði" til að eiga viðskipti með þá.
Fjárfestingum í fjármálagerningum fylgir ávallt fjárhagsleg áhætta, svo sem hætta á lítilli eða engri ávöxtun eða að höfuðstóll tapist. Bent skal á að ávöxtunartölur vísa til fortíðar og að árangur í fortíð gefur ekki áreiðanlega vísbendingu um árangur í framtíð. Áhætta af fjárfestingu eykst ef fjárfestingin er fjármögnuð með lánsfé og ávöxtun getur aukist eða minnkað vegna gengisflökts þegar við á. Skattaleg meðferð ræðst af aðstæðum hvers viðskiptavinar hvers fyrir sig og getur tekið breytingum í framtíðinni.
Fjárfestar eru hvattir til að kynna sér vel lykilupplýsingar og útboðslýsingar sjóða en þar er að finna nánari upplýsingar um viðkomandi sjóð, m.a. um áhættuþætti, fjárfestingarheimldir og notkun afleiðna.
Upplýsingar á síðunni eru aðeins birtar í upplýsingaskyni og skal ekki líta á þær sem tilboð eða ráðgjöf um kaup, sölu eða aðra ráðstöfun tiltekinna fjármálagerninga. Áskilinn er réttur til leiðréttinga.
Gengisþróun og ávöxtunTekið er tillit til umsýsluþóknunar við daglegan útreikning á gengi sjóða. Ávöxtun umfram 12 mánuði er reiknuð yfir á ársgrundvöll. Ávöxtun styttri tímabila er ekki umreiknuð á ársgrundvöll heldur er um gengisbreytingu að ræða. Uppreikningur ávöxtunar miðast við síðasta skráða gengi og er í grunnmynt viðkomandi sjóðs.