Um Íslandssjóði
Íslandssjóðir hf. er elsta sjóðastýringarfyrirtæki á Íslandi, upprunalega stofnað árið 1994 og er í eigu Íslandsbanka. Félagið er sjálfstætt starfandi fjármálafyrirtæki og starfar á grundvelli laga um fjármálafyrirtæki nr. 161/2002, laga um verðbréfasjóði nr. 128/2011 og laga um rekstraraðila sérhæfðra sjóða nr. 45/2020.
Íslandssjóðir stýra 22 verðbréfa- og fjárfestingasjóðum, fimm sérhæfðum sjóðum og þjónustar auk þess fjárfestingarfélög sem fjárfesta í óskráðum hlutabréfum og fasteignum. Íslandssjóðir stýra eignum sem nema rúmlega 350 milljörðum króna og um 11.000 sparifjáreigendur og fjárfestar hafa valið að ávaxta eignir sínar í sjóðum félagsins.
Félagið starfrækir úrval hlutabréfasjóða og blandaðra sjóða og er stærst í rekstri skuldabréfasjóða á Íslandi bæði þegar horft er til fjölda sjóða og eigna í stýringu. Íslandssjóðir hafa auk þess sérhæft sig í fasteignasjóðum og framtakssjóðum.
Allir stjórnarmenn Íslandssjóða eru óháðir. Hjá félaginu starfa 21 sérfræðingur með áralanga starfsreynslu á fjármálamarkaði. Framkvæmdastjóri félagsins er Kjartan Smári Höskuldsson og formaður stjórnar er Tanya Zharov.
Íslandssjóðir hafa hlotið eftirfarandi viðurkenningar fyrir stjórnarhætti og fyrirmyndar rekstur:
- Fyrirmyndarfyrirtæki í góðum stjórnarháttum árlega frá árinu 2013, veitt af Rannsóknarmiðstöð um stjórnarhætti við Háskóla Íslands.
- Framúrskarandi fyrirtæki árið 2020, veitt af Creditinfo.
- Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri árið 2020, veitt af Viðskiptablaðinu og Keldunni.
>> Stjórnarháttayfirlýsing 2020 (PDF)
>> Stjórnarháttayfirlýsing 2019 (PDF)
>> Stjórnarháttayfirlýsing 2018 (PDF)
>> Leiðbeiningar um stjórnarhætti fyrirtækja (PDF)

