IS Eignasafn

Ráðlagður fjárfestingartími: 3 ár+

Fyrir hvern?

Sjóðurinn hentar þeim sem vilja ávaxta sparnað í þrjú ár eða lengur og fá góða eignadreifingu á milli skuldabréfa og hlutabréfa.

Helstu kostir

  • Virk stýring og eignadreifing milli skuldabréfa og hlutabréfa
  • Sérfræðingar vakta tækifæri á markaði
  • Sveigjanleg fjárfestingarstefna
  • Engin binding
  • Skattalegt hagræði

Gengi
2.931,31
-8,09 (-0,28%)
Gengi 11.10.2024
Nafnávöxtun
Verðtryggð skuldabréf 32.9
Óverðtryggð skuldabréf
28.7
Innlend hlutabréf
27.1
Erlend hlutabréf

8.5

Innlán
2.8

Eignasafn og stefna

Markmið sjóðsins er langtímaávöxtun með fjárfestingum í hlutdeildarskírteinun verðbréfasjóða (UCITS-sjóðir) og annarra sjóða um sameiginlega fjárfestingu sem fjárfesta í innlendum og erlendum skulda- og hlutabréfum eða öðrum fjármálagerningum tengdum verðbréfum. 

Staða 01.10.2024

Gengisþróun

Grunnupplýsingar

Tegund sjóðs
Verðbréfasjóður
Stofnár
2009
Grunnmynt
ISK
Lágmarkskaup
kr.  10.000
Lágmarkskaup í áskrift
kr.  5.000
Áhættuvísir
2
Losunarstyrkur (tCO2e/ISKm)
0,63
SFDR flokkun
6. gr.
Rekstraraðili
Íslandssjóðir hf.
Vörsluaðili
Íslandsbanki hf.
Sjóðsstjóri/ar
Sigurður G. Gíslason

Þóknanir og viðskiptapantanir

Kostnaður við kaup
1,50%
- afsláttur í Netbanka
25%
- afsláttur í áskrift
50%
Árleg umsjónarlaun
0,50%
Afgreiðslugjald
kr.  1000
- afsláttur í netbanka
100%
Uppgjörstími
2 viðsk.dagar (T+2)
Viðmiðunartími
kl. 15:00
Almennur fyrirvari vegna fjárfestinga í sjóðum

Fjárfestingum í fjármálagerningum fylgir ávallt fjárhagsleg áhætta, svo sem hætta á lítilli eða engri ávöxtun eða að höfuðstóll tapist. Bent skal á að ávöxtunartölur vísa til fortíðar og að árangur í fortíð gefur ekki áreiðanlega vísbendingu um árangur í framtíð. Áhætta af fjárfestingu eykst ef fjárfestingin er fjármögnuð með lánsfé og ávöxtun getur aukist eða minnkað vegna gengisflökts þegar við á. Skattaleg meðferð ræðst af aðstæðum hvers viðskiptavinar fyrir sig og getur tekið breytingum í framtíðinni.

Fjárfestar eru hvattir til að kynna sér vel lykilupplýsingar og útboðslýsingar sjóða en þar er að finna nánari upplýsingar um viðkomandi sjóð, m.a. um áhættuþætti, fjárfestingarheimldir og notkun afleiðna.

Upplýsingar á síðunni eru aðeins birtar í upplýsingaskyni og skal ekki líta á þær sem tilboð eða ráðgjöf um kaup, sölu eða aðra ráðstöfun tiltekinna fjármálagerninga. Áskilinn er réttur til leiðréttinga.

Gengisþróun og ávöxtun

Tekið er tillit til umsýsluþóknunar við daglegan útreikning á gengi sjóða. Ávöxtun umfram 12 mánuði er reiknuð yfir á ársgrundvöll. Ávöxtun styttri tímabila er ekki umreiknuð á ársgrundvöll heldur er um gengisbreytingu að ræða. Uppreikningur ávöxtunar miðast við síðasta skráða gengi og er í grunnmynt viðkomandi sjóðs.