Fréttir

Afkoma Íslandssjóða hf. árið 2022

Hagnaður af rekstri Íslandssjóða var 640 milljónir króna árið 2022. Rekstur félagsins var stöðugur á árinu og námu þóknanatekjur 2.157 milljónum króna. Eignastýringarmarkaðurinn einkenndist nokkuð af erfiðum aðstæðum á fjármálamörkuðum á árinu sem kom niður á ávöxtun og afkomu af verðbréfaeignum.
Nánar

Árshlutauppgjör Íslandssjóða 2022

Hagnaður af rekstri Íslandssjóða var 280 milljónir króna á fyrri hluta ársins 2022 samanborið við 466 milljónir króna á sama tíma árið áður. Rekstur Íslandssjóða var stöðugur á fyrstu sex mánuðum ársins og jukust þóknanatekjur um 92 milljónir króna á milli ára og námu alls 1.120 milljónum á fyrri hluta ársins. Starfsemin einkenndist nokkuð af erfiðum aðstæðum á verðbréfamörkuðum sem leiddi til lækkunar á gengi sjóða í stýringu og neikvæðrar afkomu af verðbréfaeign félagsins.
Nánar

Árshlutauppgjör Íslandssjóða 2021

Hagnaður af rekstri Íslandssjóða hf. var 466 milljónir króna á fyrri hluta ársins samanborið við 169 milljónir króna á sama tíma árið áður. Hjá félaginu starfar 21 sérfræðingur í eignastýringu, 10 konur og 11 karlar, sem nýta aðferðir ábyrgra fjárfestinga í allri eignastýringu. Alls voru eignir í stýringu hjá Íslandssjóðum 377 milljarðar króna í lok júní. Þá stýra Íslandssjóðir stærsta græna skuldabréfasjóði landsins sem hefur fjárfest fyrir um 3 milljarða króna í skuldabréfum sem skráð eru á sjálfbæran markað Nasdaq Iceland.
Nánar

Afkoma Íslandssjóða 2020

Hagnaður verðbréfa- og fjárfestingasjóða Íslandssjóða nam 12,3 milljörðum króna á árinu 2020 og rennur til viðskiptavina Íslandssjóða í formi ávöxtunar. Allir verðbréfa- og fjárfestingasjóðir skiluðu jákvæðri ávöxtun á árinu. Sjóðurinn IS Einkasafn E skilaði bestu ávöxtun allra blandaðra sjóða á landinu og fleiri sjóðir Íslandssjóða voru í efstu sætum á landsvísu samkvæmt flokkun Keldunnar (keldan.is).
Nánar

Jákvæðar fréttir

Hlutabréfasjóðir í virkri stýringu Íslandssjóða skiluðu ávöxtun umfram Úrvalsvísitölu Kauphallar Íslands (OMXI10GI) og Einkasafn E var með hæstu ávöxtun blandaðra sjóða hérlendis á árinu 2020 skv. Keldunni. Allir sjóðir Íslandssjóða skiluðu jákvæðri ávöxtun á árinu en yfir 11 þúsund sparifjáreigendur velja sjóði Íslandssjóða til að ávaxta sitt sparifé.
Nánar

Árshlutauppgjör Íslandssjóða 2020

Hagnaður verðbréfa- og fjárfestingasjóða Íslandssjóða á fyrstu sex mánuðum ársins nam 8,2 milljörðum króna sem renna til yfir 11.000 viðskiptavina í formi ávöxtunar.
Nánar
Almennur fyrirvari

Fjárfestingum í fjármálagerningum fylgir ávallt fjárhagsleg áhætta. Virði þeirra getur bæði hækkað og lækkað. Bent skal á að ávöxtun í fortíð er hvorki vísbending um né trygging fyrir ávöxtun í framtíð. Fjárfestingarmarkmið og fjárhagsstaða fjárfesta eru mismunandi. Þeim aðilum sem hafa hug á viðskiptum er bent á að leita sér sérfræðilegrar ráðgjafar og kynna sér vel hina ýmsu fjárfestingarkosti og þjónustu sem í boði er.

Tekið skal fram að umfjöllun þessi er aðeins birt í upplýsingaskyni og skal því ekki litið á hana sem ráðleggingu/ráðgjöf um að ráðast eða ráðast ekki í tiltekna fjárfestingu eða tilboð um að kaupa, selja eða skrá sig fyrir tilteknum fjármálagerningum eða þjónustu.

Íslandssjóðir hf. ábyrgist ekki nákvæmni, áreiðanleika né réttmæti upplýsinga sem upprunnar eru frá þriðja aðila.