Breytingar hjá Íslandssjóðum

Kjartan Smári Höskuldsson hefur látið af störfum sem framkvæmdastjóri Íslandssjóða. Hann tók við starfinu árið 2016 og hefur síðan þá leitt félagið í gegnum mikilvægan vöxt og uppbyggingu. Íslandssjóðir eru í dag eitt stærsta og öflugasta sjóðastýringarfyrirtæki landsins, með 387 milljarða króna í stýringu í lok síðasta árs.
Kjartan Smári verður félaginu og starfsfólki þess áfram innan handar næstu mánuði til að tryggja farsæla yfirfærslu verkefna.
Halldóra Skúladóttir, forstöðumaður eignastýringar hjá Íslandssjóðum frá árinu 2017, tekur við stöðu framkvæmdastjóra tímabundið þar til stjórn félagsins hefur ráðið nýjan framkvæmdastjóra. Hún býr yfir víðtækri reynslu af fjármálamarkaði og þekkingu á starfsemi félagsins. Áður starfaði hún sem forstöðumaður hjá Íslandsbanka og hefur alls 26 ára reynslu í greininni.