Sleppa aðalvalmynd
home
Leit
Gagnagátt

Um Íslandssjóði

Íslandssjóðir er elsta sjóðastýringarfyrirtæki á Íslandi, stofnað árið 1994 og er í eigu Íslandsbanka.

Af hverju ættir þú að velja Íslandssjóði?

  • Elsta sjóðastýringarfyrirtæki landsins, stofnað árið 1994

  • Fjölbreytt úrval sjóða við allra hæfi

  • Um 12.000 sparifjáreigendur velja sjóði Íslandssjóða

  • Úrvalsteymi með áratuga reynslu

  • Ábyrgar fjárfestingar að leiðarljósi síðan árið 2017

  • Árlegar viðurkenningar fyrir stjórnarhætti og fyrirmyndarrekstur

Stjórn, undirnefndir og endurskoðandi

Upplýsingar um stjórn, undirnefndir og endurskoðunarfélag Íslandssjóða.

Nánar

Starfsfólk

Upplýsingar um starfsfólk Íslandssjóða.

Nánar

Reglur, stefnur og samþykktir

Innri reglur, stefnur og samþykktir Íslandssjóða.

Nánar

Aðalfundir og fjárhagsupplýsingar

Hér má finna upplýsingar um aðalfundi og fjárhagsuppgjör Íslandsjóða.

Nánar

Skipurit

Yfirlitsmynd um skipulag Íslandssjóða.

Nánar

Úrræði viðskiptavina

Hér má nálgast upplýsingar um ýmis úrræði viðskiptavina.

Nánar

Íslandssjóðir eru með starfsleyfi sem rekstrarfélag verðbréfasjóða samkvæmt lögum nr. 116/2021 og sem rekstraraðili sérhæfðra sjóða samkvæmt lögum nr. 45/2020. Íslandssjóðir eru jafnframt með starfsleyfi fyrir eignastýringu og fjárfestingarráðgjöf.

Íslandssjóðir stýra 23 sjóðum fyrir almenna fjárfesta og 8 sérhæfðum sjóðum. Íslandssjóðir stýra eignum sem nema um 364 milljörðum króna og um 12.000 sparifjáreigendur og fjárfestar hafa valið að ávaxta eignir sínar í sjóðum í rekstri Íslandssjóða.

Íslandssjóðir starfrækja úrval hlutabréfasjóða og blandaðra sjóða og er stærstir í rekstri skuldabréfasjóða á Íslandi bæði þegar horft er til fjölda sjóða og eigna í stýringu. Íslandssjóðir hafa auk þess sérhæft sig í fasteignasjóðum, framtakssjóðum og lánasjóðum.

Allir stjórnarmenn Íslandssjóða eru óháðir. Hjá Íslandssjóðum starfa 22 sérfræðingar með áralanga starfsreynslu á fjármálamarkaði. Framkvæmdastjóri er Kjartan Smári Höskuldsson og formaður stjórnar er Sylvía Kristín Ólafsdóttir.

Söluaðili

Íslandssjóðir eru dótturfélag Íslandsbanka

Íslandssjóðir eru dótturfélag Íslandsbanka og hefur bankinn verið samstarfs- og söluaðili Íslandssjóða frá stofnun fyrirtækisins árið 1994.
Verðbréfa- og lífeyrisráðgjöf Íslandsbanka býður upp á fjölbreytta þjónustu fyrir fjárfesta og alla þá sem vilja byggja upp sparnað eða fá aðstoð við að stýra eignum sínum.

Fréttir

Fréttir og greinar um starfsemi Íslandssjóði.

Nánar

Fræðsla

Við viljum auka þekkingu, færni og áhuga á fjármálum með því að bjóða upp á aðgengilega og áhugaverða fræðslu um fjármál og fjárfestingar.

Nánar