Afkoma Íslandssjóða hf. árið 2025
Rekstur Íslandssjóða hf. var stöðugur á árinu og námu þóknanatekjur um tveimur milljörðum króna og hagnaður af rekstri félagsins var 262 milljónir króna. Afkoma sjóða í stýringu hjá Íslandssjóðum, sem rennur til viðskiptavina félagsins í formi ávöxtunar, nam 8,1 milljarði króna á árinu 2025. Eignir í stýringu hjá Íslandssjóðum voru 387 milljarðar króna í árslok.
Hjá Íslandssjóðum starfa 23 sérfræðingar með áratuga reynslu af eigna- og sjóðastýringu. Íslandssjóðir eru með um 28% markaðshlutdeild á sjóðamarkaði fyrir almenna fjárfesta en um tólf þúsund viðskiptavinir ávaxta sparifé sitt í þeim 23 sjóðum sem félagið starfrækir.
Lykiltölur úr rekstri 2025
- Þóknanatekjur námu 1.986 m.kr. samanborið við 1.877 m.kr. árið áður og hækkuðu um 5,8%.
- Rekstrargjöld námu 1.639 m.kr. samanborið við 1.542 m.kr. árið 2024 og hækkuðu um 6,3%.
- Hagnaður félagsins eftir skatta var 262 m.kr. samanborið við 433 m.kr. árið 2024.
- Hagnaður sjóða í stýringu félagsins var 8,1 milljarður samanborið við 15,5 milljarða árið 2024.
- Eigið fé í árslok 2025 var 1.744 m.kr. og eiginfjárhlutfall var 34,1% en hlutfallið má lægst vera 8%.
Kjartan Smári Höskuldsson, framkvæmdastjóri Íslandssjóða:
„Árið 2025 var gott ár á skuldabréfamarkaði og var því almennt nokkuð hagfellt fyrir viðskiptavini okkar en Íslandssjóðir eru sem fyrr stærsta skuldabréfahús landsins. Allir skuldabréfasjóðir okkar skiluðu jákvæðri raunávöxtun á árinu og blandaði sjóðurinn IS Einkasafn A skilaði bestu ársávöxtun allra blandaðra sjóða hér á landi samkvæmt Keldunni. Seðlabankinn lækkaði vexti fjórum sinnum á árinu og skuldabréfasjóðir og skammtímasjóðir skila nú almennt betri ávöxtun en bestu innlánsreikningar. Hlutabréfasjóðir hafa átt undir högg að sækja undanfarið en þrátt fyrir verulegar verðsveiflur teljum við tækifæri felast í hlutabréfamarkaðnum til lengri tíma, þar sem verðlagning þykir nokkuð hófleg og rekstur skráðra félaga hefur almennt gengið prýðilega.
Óvissuþættir hér heima og á heimsvísu munu þó áfram hafa áhrif á eignaverð og mikilvægi faglegrar eignastýringar og góðrar eignadreifingar hefur því sjaldan verið meiri.“
Íslandssjóðir hf. er elsta sjóðastýringarfyrirtæki landsins, stofnað árið 1994 og er dótturfélag Íslandsbanka.
Ársreikninga félagsins og sjóðanna er að finna hér.
Nánari upplýsingar veitir Kjartan Smári Höskuldsson, framkvæmdastjóri Íslandssjóða, í gegnum netfangið kjartan@islandssjodir.is