Áhætta
Fjárfesting í sjóðum felur í sér áhættu þar sem gengi sjóða getur lækkað jafnt sem hækkað. Sjóðir Íslandssjóða eru flokkaðir eftir áhættuvísum sem gefa til kynna hversu miklar sveiflur geta átt sér stað í ávöxtun þeirra.

Áhætta
Fjárfesting í sjóðum felur í sér áhættu þar sem gengi sjóða getur lækkað jafnt sem hækkað. Fjárfesting í sjóði er þó áhættuminni en fjárfesting í einstökum verðbréfum vegna þess að sjóður fjárfestir í mörgum verðbréfum og dreifir þannig áhættunni.
Hlutabréfasjóðir eru áhættumeiri en skuldabréfasjóðir. Gengi þeirra er háð mörgum þáttum en þar vega væntingar um afkomu hlutafélaga mjög miklu. Gengi og ávöxtun skuldabréfasjóða er háð þróun markaðsvaxta. Ef vextir hækka, falla skuldabréf með föstum vöxtum í verði og skuldabréf með háum meðallíftíma falla meira í verði en skuldabréf með lágum meðallíftíma, miðað við sömu breytingar á ávöxtunarkröfu.
Tilteknum sjóðum er heimilt að nota afleiður, t.d. til þess að lágmarka áhættu, fastsetja hagnað vegna verðsveiflna eða til stöðutöku.
Fjárfestar ættu að hafa í huga að fjárfesting í sjóðum er jafnan hugsuð til langs tíma og hugsanlega fá þeir minna til baka en þeir fjárfesta fyrir í upphafi. Verðmæti eignar í sjóði getur á einhverjum tímapunkti verið lægra en það var fyrr á eignartímanum og ávöxtun í fortíð er ekki vísbending um hver ávöxtun verður í framtíð.
Áður en tekin er ákvörðun um fjárfestingu er mikilvægt að kynna sér eðli viðkomandi fjármálagernings og þá áhættu sem í honum felst en nákvæma lýsingu á áhættuþáttum hvers og eins sjóðs má finna í útboðslýsingu sjóða.
Hér að neðan má finna almenna áhættuþætti sem eiga við flestar tegundir fjármálagerninga sem og áhættu sem getur falist í fjárfestingu einstakra fjármálagerninga.
Áhættuvísir
Sjóðir Íslandssjóða eru flokkaðir eftir því hversu líklegt er að lækkun muni eiga sér stað í verði vegna hreyfinga á mörkuðum. Flokkunin byggir á áhættumælikvarða sem grundvallast af svokallaðri PRIIPS reglugerð, sbr. lög nr. 55/2021 um lykilupplýsingaskjöl vegna tiltekinna fjárfestingarafurða fyrir almenna fjárfesta og leiðbeiningum Evrópsku verðbréfaeftirlitsstofnunarinnar (e. ESMA). Áhættumælikvarðinn heitir samantekinn áhættuvísir (SRI) og felur í sér markaðsáhættu og útlánaáhættu. Flokkur 1 endurspeglar minnstu sveiflur í ávöxtun og þar með minnstu áhættuna en flokkur 7 þá mestu.
Samantekinn áhættuvísir byggir á sögulegri ávöxtun og því er vert að benda á að sveiflur í ávöxtun í fortíð gefa ekki áreiðanlega vísbendingu eða tryggingu fyrir sveiflum í ávöxtun í framtíð. Ef breytingar verða á áhættusniði- og ávöxtunarsniði sjóðs er mælikvarðinn endurskoðaður og flokkunin getur breyst.
Samantekinn áhættuvísir nær ekki yfir alla þá áhættuþætti sem fylgja fjárfestingum í sjóðum. Hann er aðallega tölfræðileg lýsing á sveiflum í ávöxtun sjóða. Hægt er að nálgast frekari umfjöllun um áhættu sem áhættuvísirinn nær ekki yfir í lykilupplýsingum og útboðslýsingum sjóða og hér fyrir ofan.
Fyrirvari vegna fræðsluefnis
Tekið skal fram að umfjöllun þessi er aðeins birt í upplýsingaskyni og skal því ekki litið á hana sem ráðleggingu/ráðgjöf um að ráðast eða ráðast ekki í tiltekna fjárfestingu eða tilboð um að kaupa, selja eða skrá sig fyrir tilteknum fjármálagerningum eða þjónustu. Íslandssjóðir hf. ber enga ábyrgð á viðskiptum sem kunna að vera gerð á grundvelli þeirra upplýsinga sem fram koma á vefsíðu þessari. Íslandssjóðir hf. ábyrgist ekki nákvæmni, áreiðanleika né réttmæti upplýsinga sem upprunnar eru frá þriðja aðila.