Kortatímabil

Fyrirtækja kreditkort geta valið um fimm kortatímabil:

Nema annað sé sérstaklega valið er tímabilið 27. - 26. sjálfvalið á öll kort nema Innkaupakort.

Fyrsta kortatímabilið er frá 27. hvers mánaðar til og með 26. næsta mánaðar. Gjalddaginn er 2. hvers mánaðar nema ef sá dagur ber upp á helgidag, þá er gjalddaginn næsta virka dag á eftir.

Þetta kortatímabil er í boði á:

  • Business Mastercard
  • Viðskiptakort Platinum
  • Viðskiptakort Gull
  • Viðskiptakort Silfur

Annað kortatímabilið er frá 1. hvers mánaðar til og með 31. sama mánaðar. Gjalddaginn er 3. næsta mánaðar nema ef sá dagur ber upp á helgidag, þá er gjalddaginn næsta virka dag á eftir. Sé þetta kortatímabil valið er eingöngu í boði að vera í pappírslausum viðskiptum.

Þetta kortatímabil er í boði á:

  • Business Mastercard
  • Viðskiptakort Platinum
  • Viðskiptakort Gull
  • Viðskiptakort Silfur
  • Innkaupakorti Ríkisins

Þriðja kortatímabilið er frá 1. hvers mánaðar til og með 31. sama mánaðar. Gjalddaginn er þá 17. næsta mánaðar á eftir nema ef sá dagur ber upp á helgidegi, þá er gjalddaginn næsta virka dag á eftir.

Þetta kortatímabil er í boði á:

  • Business Mastercard
  • Viðskiptakort Platinum
  • Viðskiptakort Gull
  • Viðskiptakort Silfur

Fjórða kortatímabilið er frá 12. hvers mánaðar til og með 11. næsta mánaðar. Gjalddaginn er 17. hvers mánaðar nema ef að sá dagur ber upp á helgidag þá er gjalddaginn næsta virka dag á eftir.

Þetta kortatímabil er í boði á:

  • Business Mastercard
  •  Viðskiptakort Platinum
  • Viðskiptakort Gull
  • Viðskiptakort Silfur
  • Innkaupakorti Ríkisins

Fimmta kortatímabilið er frá 1.hvers mánaðar til og með 31. sama mánaðar. Gjalddagi er 25. næsta mánaðar nema ef að sá dagur ber upp á helgidag, þá er gjalddagi næsta virka dag á eftir.

Þetta kortatímabil er í boði á:

  • Innkaupakorti
  • Innkaupakorti Ríkisins
Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?
Afhverju ekki?
Hætta við

Ábending þín er notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Íslandsbanka. Vantar þig aðstoð sem krefst þess að við svörum þér má hafa samband við Þjónustuver Íslandsbanka.

Netspjall