Valmynd

Afkoma Íslandssjóða hf. árið 2021

Hagnaður sjóða fyrir almenna fjárfesta nam 15,9 milljörðum króna á árinu 2021 og rennur til viðskiptavina Íslandssjóða í formi ávöxtunar.

Ávöxtun á árinu var almennt góð á árinu en allir blandaðir sjóðir og hlutabréfasjóðir skiluðu jákvæðri ávöxtun á árinu 2021 sem var sérstaklega sterkt hlutabréfaár. Sjóðurinn IS EQUUS Hlutabréf skilaði hæstu ávöxtun allra sjóða á landinu og fleiri sjóðir í rekstri Íslandssjóða voru í efstu sætum á landsvísu samkvæmt flokkun Keldunnar (keldan.is).

Íslandssjóðir högnuðust um 1.028 milljónir króna árið 2021 og námu hreinar rekstrartekjur 2.564 milljónum króna. Hjá Íslandssjóðum er alþjóðlegum aðferðum um ábyrgar fjárfestingar fylgt í allri eignastýringu. Alls voru eignir í stýringu hjá Íslandssjóðum um 410 milljarðar króna í árslok.
 
Hagnaður verðbréfasjóða og sérhæfðra sjóða fyrir almenna fjárfesta var 15,9 milljarðar króna samanborið við 12.3 milljarða króna árið áður. Sjóðirnir eru 22 talsins og nam hrein eign þeirra um 224 milljörðum króna í árslok.
Hagnaður Íslandssjóða hf. nam 1.028 m.kr. eftir skatta samanborið við 482 m.kr. árið 2020.
Hreinar rekstrartekjur námu 2.564 m.kr. samanborið við 1.846 m.kr. árið áður.
Rekstrargjöld námu 1.279 m.kr. samanborið við 1.244 m.kr. árið áður.
Eigið fé í árslok 2021 nam 2.524 m.kr. en var 1.979 m.kr. í ársbyrjun. Eiginfjárhlutfall félagsins var 63,2% í árslok 2021 en má lægst vera 8%.
 
Kjartan Smári Höskuldsson, framkvæmdastjóri Íslandssjóða:
„Enn eitt árið sjáum við góða ávöxtun til viðskiptavina okkar sem er sérstaklega ánægjulegt þegar áhugi almennings á sparnaði og fjárfestingum hefur sjaldan verið jafn mikill og nú. Stýring sjóða og eignasafna gekk afar vel hjá Íslandssjóðum á árinu og allir helstu eignaflokkar skiluðu sparifjáreigendum góðri ávöxtun. Þá ber hæst að nefna hlutabréfasjóðinn IS EQUUS Hlutabréf sem skilaði um 60% ávöxtun á árinu, hæst allra sjóða hér landi. Þá er afar jákvætt að sjá stóraukna þátttöku almennra fjárfesta á hlutabréfamarkaði samfara auknum sparnaði í sjóðum og innlánum.“

Íslandssjóðir hf. er elsta sjóðastýringarfyrirtæki landsins og er dótturfélag Íslandsbanka. Hjá Íslandssjóðum starfar 21 sérfræðingur í eignastýringu, tíu konur og ellefu karlar. 

Ársreikningur félagsins er aðgengilegur hér.

Nánari upplýsingar um ársreikninginn veitir Kjartan Smári Höskuldsson, framkvæmdastjóri, í síma 844 2950.