Friðrik Sophusson, stjórnarformaður
Ávarp stjórnarformanns
Íslandsbanki skuldbindur sig til að starfa eftir ýtrustu kröfum um stjórnarhætti og siðareglur. Bankinn fylgir ákveðinni stefnu sem tryggir að bankanum sé stjórnað á skilvirkan hátt, með virkri umsjón og eftirliti.
Birna Einarsdóttir, bankastjóri
Ávarp bankastjóra
Við höfum náð að skapa þann banka og vinnu umhverfi sem við stefndum að. Við erum sterkt og samstíga teymi og saman hefur okkur tekist að ná árangri sem við getum verið stolt af.
Helstu tölur 2015
Þar af nam hagnaður af reglulegri starfsemi 16,2 ma. kr.
Hreinar þóknanatekjur jukust um 14,7% árið 2015, sem gera 29% af hreinum rekstrartekjum
Arðsemi eigin fjár af reglulegri starfsemi, miðað við 14% eiginfjárhlutfall (CET1), var 13,2% á árinu 2015
Íslandsbanki starfrækir skilvirkasta útibúanet á Íslandi og í hagræðingarskyni voru tvö útibú sameinuð á árinu
Yfir 2.200 ný húsnæðislán til einstaklinga voru veitt á árinu 2015
Íslandsbanki var efstur meðal fjármálafyrirtækja samkvæmt Íslensku ánægjuvoginni, þriðja árið í röð
Ársskýrsla Íslandsbanka 2015, ásamt ársreikningi samstæðu og áhættuskýrslu, gefa greinargóða mynd af starfsemi bankans og rekstri á árinu.
Hér má skoða skýrslurnar á PDF formi.
Að auki má finna allt kynningarefni, s.s. kynningar, tilkynningar, einblöðung, lykiltölur og myndband, á vef fjárfestatengsla undir afkoma og tilkynningar.Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?