Þjónustusími - 515 4444
Í þjónustusíma bankanna 515 4444 getur þú:
- Fengið stöðu á þínum reikningum
- Fengið upplýsingar um 20 síðustu færslur
- Millifært milli eigin reikninga (frá kl. 07:00 til 21:00)
- Hámarksupphæð millifærslna á sólahring er 250.000 kr.
Kostir þjónustusímans 515 4444
- Opinn allan sólarhringinn
- Enginn kostnaður nema símtalið
- Ódýrt og aðgengilegt
Hvernig fæ ég aðgang að þjónustusímanum?
Fyrsta leyninúmerið sem þú velur þarf að skrá hjá þjónustufulltrúum í útibúum bankans en því er síðan hægt að breyta hvenær sem er í gegnum Þjónustusímann.
Notkunarleiðbeiningar fyrir þjónustusímann
Hringdu í síma 515 4444 (athugið einungis er greitt fyrir símtalið)
- Veldu fjögurra stafa bankanúmer, tveggja stafa höfuðbók og sex stafa reikningsnúmer (alls 12 stafir) og ýttu síðan á #. Ef t.d. reikningsnúmerið þitt er 123 í útibúi 515, slærðu inn 12 stafa töluna: "051526000123" Mundu eftir að bæta núllum fyrir framan banka- og reikningsnúmerið ef það nær ekki tilskildum stafafjölda.
- Sláðu inn fjögurra stafa leyninúmeri og ýttu aftur á # . Hægt er að flýta lestri færslna með því að ýta á *.
- Þá ertu komin/n inn í þjónustu þíns viðskiptabanka og færð upplýsingar um stöðu þess reiknings sem valinn er og síðustu færslur.
- Hægt er að stöðva lesturinn með því að velja # og þá er hægt að velja aðra möguleika, svo sem millifærslur, upplýsingar um annan reikning o.fl. Þjónustusíminn leiðir svo viðskiptavini áfram í þeim aðgerðum sem valdar eru.
Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?