Skýrsla um íslenskan sjávarútveg

Fiskeldi mun standa undir meira magni sjávarafurða en hefðbundnar fiskveiðar í fyrsta skiptið árið 2020 samkvæmt OECD og veiða Kínverjar nú meira en allar fiskveiðiþjóðir Evrópu samanlagt. Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýútkominni skýrslu Íslandsbanka um íslenskan sjávarútveg.

Sjávarútvegsskýrsla Íslandsbanka hefur verið gefin út síðan árið 2003. Er það ósk okkar að skýrslan gefi bæði beinum og óbeinum hagsmunaaðilum heildstæða mynd af umfangi og áhrifum sjávarútvegarins á íslenskt samfélag. Eins og síðastliðin ár naut bankinn liðsinnis Deloitte við umfjöllun um rekstur sjárvarútvegsfélaga og kunnum við þeim bestu þakkir fyrir.

Íslenskur sjávarútvegur 

Ólafur Hrafn Ólafsson, viðskiptastjóri hjá Íslandsbanka segir í stuttu máli frá því helsta sem finna má í skýrslunni.

 

 

Skemmtilegar staðreyndir úr skýrslunni

Fiskeldi mun standa undir meira magni sjávarafurða en hefðbundnar fiskveiðar í fyrsta skiptið árið 2020 samkvæmt OECD

Kínverjar veiða meira en allar fiskveiðiþjóðir Evrópu samanlagt

Ísland situr í 17. sæti meðal stærstu fiskveiðiþjóða heims með um 1,3% hlutdeild á heimsvísu.

Reiknað er með 15% aukningu útflutningsverðmætis í ár og tæplega 7% aukningu á næsta ári.

Bretland er stærsta viðskiptaþjóð sjávarútvegarins með um 16% af heildarverðmæti útfluttra sjávarafurða.

Skýrsla um íslenskan sjávarútveg

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?
Afhverju ekki?
Hætta við

Ábending þín er notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Íslandsbanka. Vantar þig aðstoð sem krefst þess að við svörum þér má hafa samband við Þjónustuver Íslandsbanka.

Netspjall