Úrræði fyrir fyrirtæki
Bankinn byggir allar ákvarðanir sínar um úrlausnir á greiðsluvanda fyrirtækja á vandlegri greiningu á fjárhagsstöðu viðskiptavinar, viðskiptasögu, formlegu áhættumati og ítarlegri skoðun á greiðsluhæfi. Þá taka ákvarðanir einnig mið af undirliggjandi áhættu og þeim tryggingum og áhættuvörnum sem eru til staðar í hverju tilviki.
Úrræði sem bankinn getur verið aðili að
Úrræði | Skilgreining | Fyrir hverja? | Hver eru fyrstu skref fyrirtækisins? |
---|---|---|---|
Skilmálabreyting | Lenging lánstíma, tímabundin lækkun á greiðslubyrði lána, tímabundin frestun á greiðslum lána. | Hentar fyrirtækjum í tímabundnum greiðsluerfiðleikum. | Hafa samband við ráðgjafa eða sinn tengilið í Íslandsbanka. |
Samningur um frjáls skuldaskil | Samningur á milli lánveitenda og skuldara um uppgjör skulda. | Hentar þeim félögum sem eru í varanlegum greiðsluerfiðleikum og áðurnefnd úrræði duga ekki til. Þá þarf að ríkja fullt traust á milli samningsaðila. | Hafa samband við viðskiptastjóra eða sinn tengilið í Íslandsbanka. Leita aðstoðar sérfræðinga, s.s. lögfræðings. |
Nauðasamningar | Sjá 3. þátt laga nr. 21/1991 um gjaldþrotaskipti o.fl. | Fyrir fyrirtæki í varanlegum greiðsluerfiðleikum þar sem önnur úrræði duga ekki til, t.d. vegna þess að ekki hefur náðst samstaða meðal kröfuhafa. | Leita aðstoðar sérfræðings/lögfræðings við gerð umsóknar til héraðsdóms og útvegun meðmæla tilskilins hluta kröfuhafa. |
Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?