Lagalegir fyrirvarar

Vefsíða Íslandsbanka og efni á samfélagsmiðlum

Upplýsingar birtar á vef Íslandsbanka eru samkvæmt bestu vitund bankans á hverjum tíma og er ekki tekin ábyrgð á viðskiptum sem gerð eru á grundvelli þeirra, þá getur bankinn ekki ábyrgst að upplýsingarnar séu allar réttar. Þá kunna þær upplýsingar og skoðanir sem fram koma á vefnum að breytast án fyrirvara. Íslandsbanki ábyrgist jafnframt ekki efni sem stafar frá þriðja aðila og birt er á vefnum.

Þær upplýsingar sem birtar eru á vefsíðu Íslandsbanka fela á engan hátt í sér ráðleggingar til viðskiptavina um kaup eða sölu tiltekinna fjármálagerninga og bera notendur vefsíðunnar einir ábyrgð á þeim fjárfestingaákvörðunum sem teknar eru á grundvelli upplýsinga sem birtar eru á vefsíðunni.

Íslandsbanki ber ekki í neinum tilvikum ábyrgð á tjóni sem kann að hljótast af upplýsingum er birtast á vefsíðu bankans né tjóni sem rekja má beint eða óbeint til notkunar á vef bankans. Þá ber Íslandsbanki ekki í neinum tilvikum ábyrgð á tjóni sem rekja má til þess að ekki er hægt að nota vefinn, um skemmri eða lengri tíma.

Íslandsbanki á höfundarrétt á öllum þeim upplýsingum sem fram koma á vef bankans, nema annað sé sérstaklega tekið fram eða leiða megi af eðli máls. Skriflegt samþykki Íslandsbanka þarf til að endurbirta upplýsingar sem fram koma á vef bankans, dreifa þeim eða afrita þær. Ekki skiptir máli hvers eðlis þær upplýsingar eru né í hvaða tilgangi ætlunin er að endurbirta þær, afrita þær eða dreifa þeim. Viðskiptavinum Íslandsbanka er þó heimilt að vista slíkar upplýsingar til einkanota.

Viðskipti með fjármálagerninga eru mjög áhættusöm í eðli sínu. Verðbreytingar í fortíð gefa ekki endilega vísbendingu um verðbreytingar í framtíð. Notendur á vefsíðu Íslandsbanka eru hvattir til að afla sér almennra upplýsinga um eðli verðbréfaviðskipta, fjárfestingamálefni, skattamál o.fl. sem tengist verðbréfaviðskiptum hjá ráðgjöfum bankans.

Framangreindir fyrirvarar eiga jafnframt við um allt efni sem er sett af hálfu Íslandsbanka inn á samfélagsmiðla á borð við Facebook, Instragram, Snapchat,Twitter, Youtube og Vimeo

Lagalegur fyrirvari varðandi tölvupóstsendingar

Upplýsingar sem kom fram í tölvupósti og eftir atvikum viðhengi, sendum frá netföngum Íslandsbanka, gæti innihaldið trúnaðarupplýsingar og/eða einkamál og er eingöngu ætlaður þeim sem hann er stílaður á. Efni hans og innihald er á ábyrgð þess starfsmanns sem sendir hann ef það tengist ekki starfsemi Íslandsbanka. Ef sending þessi hefur ranglega borist yður vinsamlega gætið fyllsta trúnaðar, tilkynnið sendanda og eyðileggið sendinguna eins og skylt er skv. 47. gr. laga nr. 81/2003 um fjarskipti.

Upptaka símtala, geymsla og vistun gagna

Í þeim tilgangi að tryggja öryggi viðskiptamanns og Íslandsbanka er viðskiptamanni kunnugt um að viðskiptasímtöl við bankann kunna að vera hljóðrituð án sérstakrar tilkynningar í hvert sinn og eru slíkar símaupptökur gerðar í samræmi við heimild í lögum um fjarskipti.

Viðskiptamanni er kunnugt um að upptökur kunni að vera lagðar fram í dómsmáli og/eða notaðar sem sönnunargagn í öðrum tilvikum ef upp kemur ágreiningur um hvað aðilum fór á milli, svo sem um forsendur og/eða framkvæmd viðskipta. Að öðru leyti skal bankinn fara með upptökur líkt og með aðrar upplýsingar er lúta þagnarskyldu, sbr. 58. til 60. gr. laga nr. 161/2002, um fjármálafyrirtæki.

Öll gögn, hverju nafni sem nefnast, sem innihalda upplýsingar um viðskipti viðskiptamanna og framkvæmd þeirra eru vistaðir hjá bankanum í það minnsta fimm ár.

Netspjall Íslandsbanka

Öll samskipti í gegnum netspjall Íslandsbanka eru vistuð í gagnagrunni bankans til að tryggja öryggi viðskiptavina og Íslandsbanka. Öll misnotkun notenda á netspjallinu varðar við lög. 

Netspjall Íslandsbanka er eingöngu ætlað fyrir almennar fyrirspurnir og aðstoð við viðskiptavini. Starfsfólk Íslandsbanka getur ekki afhent fjárhagslegar upplýsingar, persónuupplýsingar eða lykilorð í gegnum netspjallið.

Íslandsbanki ber ekki í neinum tilvikum ábyrgð á tjóni sem kann að hljótast af upplýsingum sem birtar eru, eða bent er á, í gegnum netspjall bankans, né tjóni sem rekja má beint eða óbeint til notkunar á netspjalli bankans. Þá ber Íslandsbanki ekki í neinum tilvikum ábyrgð á tjóni sem rekja má til þess að ekki er hægt að nota netspjallið, um skemmri eða lengri tíma.

Notendum netspjallsins er jafnframt bent á að senda aldrei viðkvæmar upplýsingar í gegnum netspjallið, til dæmis lykilorð, kortanúmer eða bankaupplýsingar.

Uppfært 4.febrúar 2015

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?
Afhverju ekki?
Hætta við

Ábending þín er notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Íslandsbanka. Vantar þig aðstoð sem krefst þess að við svörum þér má hafa samband við Þjónustuver Íslandsbanka.

Netspjall