Fjármálaviðtal fyrirtækja
Fjárhagslegt heilbrigði er forsenda þess að rekstur fyrirtækis beri sig.
Við viljum stuðla að heilbrigðum rekstri með því að bjóða eiganda eða forsvarsmanni fyrirtækis að koma í fjármálaviðtal þar sem farið er yfir lykilatriði í rekstrinum byggt á þeim gögnum sem berast okkur. Mögulega getum við bent á leiðir til að bæta reksturinn og í leiðinni veitt þér enn betri þjónustu.
Fjármálaviðtal fyrirtækja
Panta viðtalÁvinningur fjármálaviðtals
Eftir að þú hefur farið í gegnum umsóknarferlið höfum við samband við þig eins fljótt og auðið er.
- Við tökum á móti þér í því útibú sem þú velur
- Viðtalið tekur um 1 klst.
- Viðtalið veitir þér tækifæri til að kynna reksturinn og bankanum að hlusta á þarfir félagsins
- Við veitum upplýsingar um hvernig kennitölur geta nýst við reksturinn
- Möguleikar á endurfjármögnun eru ræddir ef við á
- Viðtalið er þér að kostnaðarlausu
Fyrirvari
Athugið að ekki er um að ræða rekstrar- eða skattaráðgjöf af hálfu bankans eða starfsmanna hans.
Íslandsbanki áskilur sér rétt til að synja umsókn um fjármálaviðtal. Ástæður synjunar geta verið af ýmsum toga.
Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?