Fréttir Greiningar

Spáum 0,1% hækkun neysluverðs í október

14.10.2016 10:50

Við spáum því að vísitala neysluverðs (VNV) hækki um 0,1% í október frá fyrri mánuði. Þar með eykst 12 mánaða verðbólgutakturinn úr 1,8% í 1,9%, gangi spá okkar eftir. 

Verðbólguhorfur til meðallangs tíma hafa lítið breyst frá síðustu spá okkar, þótt skammtímaverðbólga mælist nú meiri en áður vegna leiðréttingar Hagstofunnar á mistökum sínum fyrr á árinu. Eftir sem áður er útlit fyrir að verðbólga haldist undir 2,5% markmiði Seðlabankans út árið 2017. Í kjölfarið mun verðbólga hins vegar aukast allhratt og vera í grennd við 4,0% efri þolmörk verðbólgumarkmiðs bankans á seinni hluta ársins 2018. Hagstofan birtir mælingu VNV kl. 09:00 þann 27. október næstkomandi.

Húsnæði og flug til hækkunar

Af helstu áhrifaþáttum vega flugfargjöld hvað þyngst til hækkunar VNV að þessu sinni eftir talsverða lækkun þess liðar í síðasta mánuði. Við teljum að flugliðurinn hafi áhrif til 0,12% hækkunar VNV nú, að mestu vegna hækkunar á flugfargjöldum til útlanda. Þessi hækkun verður hins vegar tímabundin að mati okkar, og gæti sem best gengið til baka á komandi mánuðum.

Að flugfargjöldum undanskildum vegur húsnæðisliður VNV mest til hækkunar hennar (0,09% áhrif í VNV). Það eru samt sem áður minni hækkunaráhrif en undanfarna mánuði, sem helgast bæði af hóflegri hækkun reiknaðrar húsaleigu samkvæmt könnun okkar (0,08% í VNV) og af lækkun á viðhaldskostnaði milli mánaða (-0,01% í VNV).

Eldsneytisverð hér á landi hefur hækkað aðeins undanfarnar vikur í kjölfar hækkunar á heimsmarkaðsverði, og reiknum við með 0,02% hækkunaráhrifum í VNV vegna þess. Loks má nefna að hækkun á fæðiskostnaði í grunnskólum Reykjavíkur vegur til hækkunar í spánni.

Fatnaður, bifreiðar, matvara og lyf til lækkunar

Á móti ofangreindum hækkunaráhrifum vegur lækkun ýmissa undirliða VNV þar sem styrking krónu er stór áhrifaþáttur, enda hefur krónan styrkst um u.þ.b. 9% gagnvart körfu helstu viðskiptamynta frá miðju ári. Einna sterkust eru áhrifin af verðlækkun á fötum og skóm (-0,06% í VNV), en vísbendingar eru um að fataverð fari nú lækkandi. Má þar nefna að Lindex verslunarkeðjan tilkynnti fyrr í mánuðinum um 8% meðalverðlækkun í verslunum sínum.
 
Að auki má t.d. nefna verðlækkun á bifreiðum (-0,03% í VNV), mat og drykk (-0,04% í VNV) og lyfjum (-0,01% í VNV). Bifreiðaverð hefur þegar lækkað um 4% og lyfjaverð um tæp 8% undanfarið ár, og ræður lægra innflutningsverð vegna styrkingar krónu þar mestu. Auk þess gerum við ráð fyrir lækkun á ýmsum öðrum innfluttum liðum, þótt áhrif þeirra séu minni. Að lokum má nefna að árstíðabundin verðlækkun á gistingu hefur 0,02% lækkunaráhrif í spá okkar nú.

Verðbólga svipuð næstu mánuði

Útlit er fyrir að VNV hækki fremur lítið til áramóta. Er ástæðan að stærstum hluta styrking krónu sem við eigum von á að haldi áfram á næstunni þótt líklega hægi á styrkingunni með lækkandi sól. Við spáum 0,2% lækkun VNV í nóvember, 0,3% hækkun í desember og 0,7% lækkun í janúar. Verðbólga mun samkvæmt því mælast 2,0% í árslok. 

Húsnæðisliðurinn leggur að jafnaði mest til hækkunar VNV á tímabilinu, eða 0,13% í mánuði hverjum. Í nóvember gerum við ráð fyrir verðlækkun á flugfargjöldum og áframhaldandi lækkun á ýmsum innfluttum liðum. Flugfargjöld hafa hins vegar talsverð hækkunaráhrif í desember og er þar um árstíðabundna hækkun að ræða. Loks koma útsöluáhrif inn af krafti í janúarmánuði á næsta ári, en auk þess hefur fyrirhugað afnám tolla á ýmsar innfluttar vöru lækkunaráhrif sem og væntanleg lækkun veitugjalda fyrir rafmagnsflutninga og kalt vatn hjá OR. 

Verðbólga undir markmiði út árið 2017

Útlit er fyrir áframhaldandi hóflega verðbólgu hérlendis svo lengi sem gengi krónu gefur ekki eftir á nýjan leik. Við spáum því að verðbólga verði að jafnaði 1,7% á árinu 2017, og að í lok næsta árs mælist hún 1,9%. Í kjölfarið teljum við hins vegar að verðbólga muni fara vaxandi, fara yfir 2,5% verðbólgumarkmið Seðlabankans á öðrum ársfjórðungi 2018 og verða í grennd við 4,0% efri þolmörk markmiðsins á síðasta fjórðungi þess árs.
 
Gengi krónu ræður mestu um þá verðbólguþróun sem hér er spáð til meðallangs tíma. Við gerum ráð fyrir áframhaldandi styrkingu krónu út 3. ársfjórðung 2017, og að styrkingin nemi ríflega 4% frá núverandi gildum. Í kjölfarið teljum við hins vegar að gengi krónu taki að lækka á nýjan leik, enda raungengið þá orðið nokkuð hátt, farið að hægja á hagvexti og spennunni í hagkerfinu, og tekið að draga úr gjaldeyrisinnflæði með minnkandi viðskiptaafgangi. Veikingu krónu fylgir aukin verðbólga, en það mildar þó höggið að útlit er fyrir hægari hækkun á launakostnaði og íbúðaverði á seinni hluta spátímans. Hins vegar ríkir öllu meiri óvissa en áður um þróun launa á komandi misserum í ljósi þess að SALEK-samkomulagið svonefnda, sem stuðla átti að stöðugleika og samræmingu á vinnumarkaði, virðist nú vera í uppnámi.

Verðbólguspá fyrir október 2016

Back

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?
Afhverju ekki?
Hætta við

Ábending þín er notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Íslandsbanka. Vantar þig aðstoð sem krefst þess að við svörum þér má hafa samband við Þjónustuver Íslandsbanka.

Netspjall