Fréttir Greiningar

Hæsta gildi Væntingavísitölunnar í tæp 8 ár

29.10.2015 10:27

Væntingavísitala Gallup (VVG) hækkaði um rúm 5 stig í október frá fyrri mánuði, og mælist þar með yfir 100 stigunum sem marka jafnvægi á milli bjart- og svartsýni þriðja mánuðinn í röð. Er gildi VVG 33 stigum hærra en það var á sama tíma í fyrra, og mælist nú 108,9 stig sem er hæsta gildi vísitölunnar frá janúar 2008. Þess má geta VVG hefur langoftast lækkað í október, eins og sjá má á myndinni hér fyrir neðan, og á síðastliðnum 5 árum hefur það verið undantekningalaust. Þetta má sjá í frétt frá Gallup sem birti Væntingavísitölu sína fyrir októbermánuð síðastliðinn þriðjudag.

Hraðari einkaneysluvöxtur framundan

Ofangreind þróun VVG er í takti við þróun annarra hagstærða er gefa tóninn varðandi þróun einkaneyslunnar um þessar mundir, s.s. kortaveltu, nýskráningar fólksbifreiða og fjölda utanlandsferða. Gefa þær til kynna að einkaneysluvöxtur komi væntanlega til með að verða talsvert hraðari á síðari helmingi þessa árs en á þeim fyrri. Bráðabirgðatölur Hagstofunnar um þróun einkaneyslu á fyrri helmingi árs benda til þess að hún hafi vaxið um 4,4% að raungildi á milli ára, sem er mun meiri vöxtur en verið hefur undanfarin ár. Við teljum þó að sá vöxtur sé heldur hóflegri en komi til með að reynast á árinu í heild, en eins og sjá má í þjóðhagsspá okkar sem við birtum nýverið þá spáum við með 4,8% einkaneysluvexti í ár. Skýring á þeirri þróun er m.a. sú að kjarasamningaviðræður og verkfallsaðgerðir, og óvissa þeim tengd, kunni að hafa aftrað nokkuð vexti í eftirspurn heimilanna á fyrri árshelmingi, en niðurstaða þeirra viðræðna gefi svo aftur á móti innspýtingu í eftirspurn á seinni árshelmingi.


Back

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?
Afhverju ekki?
Hætta við

Ábending þín er notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Íslandsbanka. Vantar þig aðstoð sem krefst þess að við svörum þér má hafa samband við Þjónustuver Íslandsbanka.

Netspjall