Fréttir Greiningar

Lítilsháttar aukning verðbólgu í október

29.10.2014 11:12

Hækkun á húsnæðislið skýrir nærri þrjá fjórðu hluta af verðbólgu á Íslandi þessa dagana. Verðbólga mælist nú 1,9% samkvæmt vísitölu neysluverðs (VNV), en ef miðað er við vísitölu neysluverðs án húsnæðis er verðbólgan aðeins 0,5%.

VNV hækkaði um 0,1% í október samkvæmt nýbirtum tölum Hagstofunnar. Raunar hefði mæling Hagstofu skilað óbreyttri VNV í október líkt og við spáðum, ef ekki hefði komið til leiðrétting á mistökum sem Hagstofan gerði í september sl. við útreikning á verðbreytingu flugfargjalda. Opinberar spár lágu á bilinu frá óbreyttri VNV til 0,1% hækkunar. 

Eldsneyti og raftæki lækka í verði

Líkt og vænta mátti lækkaði eldsneytisliður VNV myndarlega í mælingunni nú. Lækkunin milli mánaða nam 3,5% (-0,15% áhrif í VNV). Við teljum raunar líklegt að frekari lækkun eldsneytis muni koma fram á næstunni, enda virðist eldsneytisverð erlendis hafa náð jafnvægi eftir u.þ.b. 10% lækkun á fyrri helmingi októbermánaðar. Þá hafði fyrirhuguð lækkun vörugjalda um næstu áramót lækkunaráhrif nú (-0,04% í VNV), enda sjá raftækjaverslanir væntanlega sína sæng útbreidda hvað það varðar að fáir myndu kaupa slík tæki fram til áramóta ef ekki kæmi forskot á lækkunina. Lækkaði verð á stærri heimilistækjum um 1,4% og verð á sjónvörpum, hljómtækum o.þ.h. lækkaði um 4,1%. Líklegt er að fyrrnefndi liðurinn muni lækka frekar á næstunni, enda hefur þeim verslunum fjölgað jafnt og þétt sem hafa auglýst slíkt forskot á vörugjaldalækkunina.

Íbúðaverð ráðandi í verðbólgu

Húsnæðisliður VNV hækkaði um 0,4% í október (0,11% í VNV). Var stærstur hluti þeirrar hækkunar til kominn vegna tæplega 0,7% hækkunar á reiknaðri húsaleigu (0,09% í VNV), en greidd húsaleiga hækkaði um 0,4% í mánuðinum. Reiknuð húsaleiga, sem að mestu endurspeglar íbúðaverð, hefur undanfarna 12 mánuði hækkað um tæplega 9%, og er það veigamesti þátturinn í snarpri hækkun húsnæðisliðar á tímabilinu. Húsnæðisliðurinn er svo stærsti einstaki hækkunarliðurinn í VNV undanfarið ár, og vó hann til 1,4% hækkunar VNV á tímabilinu. Verðbólga án húsnæðisliðar er þannig einungis 0,5% undanfarið ár eins og áður segir, og vegast þar í stórum dráttum á 1,1% hækkunaráhrif vegna þjónustu annars vegar, og 0,6% lækkunaráhrif vegna innfluttra vara hins vegar. 

Flugfargjöld hækka vegna leiðréttingar

Flugfargjöld hækkuðu um 9,5% (0,14% í VNV) í birtingu VNV nú í október. Hins vegar endurspeglar það ekki mælingu Hagstofunnar á flugfargjöldum að þessu sinni, þar sem Hagstofan setti inn leiðréttingu á mistökum sem gerð höfðu verið í septembermælingu á flugfargjöldunum. Að þessari leiðréttingu slepptri hefðu flugfargjöld lækkað um u.þ.b. 2% í október, og VNV verið óbreytt frá septembermánuði. 

Jákvæðar skammtímahorfur en blikur á lofti

Sem fyrr eru verðbólguhorfur býsna jákvæðar til skemmri tíma litið, þótt talsverðar blikur séu á lofti þegar skyggnst er lengra fram á við. Við teljum þannig líklegt að frekari lækkun muni koma fram á eldsneyti og raftækjum í nóvembermælingu VNV. Bráðabirgðaspá okkar hljóðar upp á 0,2% hækkun VNV í næsta mánuði, en með hliðsjón af framangreindum þáttum virðist óvissan þar frekar vera niður á við. Við gerum í kjölfarið ráð fyrir 0,2% hækkun VNV í desember, en 0,2% lækkun vísitölunnar í janúar, og mun verðbólga samkvæmt spánni verða 2,0% í upphafi næsta árs. 

Hins vegar gæti bætt allhratt í verðbólgutaktinn á næsta ári ef kjarasamningum sem nú eru framundan verður lent með verulegri prósentuhækkun nafnlauna. Vaxandi launakostnaður virðist því vera einn helsti áhættuþátturinn hvað varðar aukna verðbólgu á komandi misserum, þótt raunar séu líkur á að verðbólga verði áfram í hóflegri kantinum miðað við það sem raunin hefur verið sögulega séð hér á landi. Þó verður auðvitað að setja þann fyrirvara að aldrei er á vísan að róa með þróun krónunnar, og virðist áhættan þar sömuleiðis vera til veikingar og í kjölfarið meiri innfluttrar verðbólgu.

Back

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?
Afhverju ekki?
Hætta við

Ábending þín er notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Íslandsbanka. Vantar þig aðstoð sem krefst þess að við svörum þér má hafa samband við Þjónustuver Íslandsbanka.

Netspjall