Fréttir Greiningar

Skekkja Hagstofunnar breytir stýrivaxtaspá okkar

30.09.2016 09:05

Tölur Hagstofunnar fyrir vísitölu neysluverðs í september breyta spá okkar um aðgerðir peningastefnunefndar 5. október nk. Vísitalan hækkaði um tæp 0,5% á milli mánaða og var það langt umfram spá okkar og aðrar opinberar spár, en við reiknuðum með óbreyttri vísitölu. Ein helsta ástæða spáskekkjunnar er leiðrétting Hagstofunnar á mistökum hennar fyrr á árinu, en mistökin felast í því að hækkunartaktur reiknaðrar húsaleigu, og þar með verðbólgan, hefur verið umtalsvert vanmetin að hálfu stofnunarinnar undanfarna mánuði. 

Fyrir birtingu Hagstofunnar á VNV fyrir september reiknuðum við með því að peningastefnunefndin myndi lækka stýrivexti bankans um 0,25 prósentur á næsta vaxtaákvörðunarfundi sínum. Birtist sú spá m.a. í nýrri þjóðhagsspá okkar. Meðal þess sem við töldum upp sem líklegar forsendur nefndarinnar fyrir lækkun var að krónan hefur styrkst um ríflega 3% frá síðustu vaxtaákvörðun og verðbólguhorfur eru af þeim sökum nokkuð betri en í síðustu verðbólguspá bankans sem birt var samhliða síðustu vaxtaákvörðun peningastefnunefndar í lok ágúst sl. Þá höfðu verðbólguvæntingar lækkað enn frekar líkt og sést m.a. á þróun verðbólguálags ríkisskuldabréfa.

Nú er ljóst að sökum mistaka Hagstofunnar er verðbólgan meiri en við höfðum áður áætlað og verðbólguhorfur verri. Einnig hefur verðbólguálag á skuldabréfamarkaði hækkað nokkuð sem viðbrögð við fréttum Hagstofunnar. Þar af leiðandi eru raunstýrivextir Seðlabankans, hvort sem er mælt út frá núverandi verðbólgu eða verðbólguálaginu, lægri og aðhaldsstig peningastjórnunnar minna. Af þeim sökum eru ekki sömu forsendur fyrir lækkun stýrivaxta og áður. Reiknum við með því að þetta geri útslagið með það að peningastefnunefndin haldi stýrivöxtum bankans óbreyttum að þessu sinni.  

Back

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?
Afhverju ekki?
Hætta við

Ábending þín er notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Íslandsbanka. Vantar þig aðstoð sem krefst þess að við svörum þér má hafa samband við Þjónustuver Íslandsbanka.

Netspjall