Fréttir Greiningar
Allir sammála í peningastefnunefndinni
19.02.2015 10:09
Niðurstaða kjarasamninga ráðandi um næstu skref
Kemur fram í fundargerðinni að það sé mat nefndarinnar að haldist verðbólga undir markmiði og verði launahækkanir í komandi kjarasamningum í samræmi við verðbólgumarkmið gætu, að öðru óbreyttu, skapast forsendur fyrir frekari lækkun nafnvaxta. Hins vegar taldi nefndin að miklar launahækkanir og vöxtur eftirspurnar gætu grafið undan nýfengnum verðstöðugleika og valdið því að hækka þyrfti vexti á ný. Af þessu má ljóst vera að niðurstaða kjarasamninga verður ráðandi þáttur um aðgerðir nefndarinnar í peningamálum í kjölfar samningaanna. Fram að því virðist ljóst að nefndin mun halda vöxtum óbreyttum.
Telja líkur á að bankinn sé að vanspá verðbólgunni
Bendir til að vöxtum verði haldið óbreyttum í mars
Framsýna leiðsögnin sem felst í yfirlýsingu og fundargerð peningastefnunefndar er að okkar mati nokkuð eindregið á þá leið að halda vöxtum óbreyttum í bili. Má þar auk ofangreinds benda á þessa klausu úr fundargerðinni: „Slakinn væri að mestu horfinn og gert væri ráð fyrir öflugum hagvexti á næstu misserum. Launavöxtur hefði verið töluverður á Íslandi, ólíkt flestum viðskiptalöndum, og vaxandi órói á vinnumarkaði gæti teflt í tvísýnu stöðugleikanum sem áunnist hefur. Af þessum sökum var nefndin sammála um að rétt væri að staldra við uns efnahagshorfur skýrðust frekar, einkum varðandi launaþróun.“ Í ljósi þess að ólíklegt virðist að niðurstaða verði komin í meirihluta þeirra kjarasamninga sem nú eru lausir fyrir næstu vaxtaákvörðun 18. mars næstkomandi eru að okkar mati mestar líkur á að nefndin ákveði að halda stýrivöxtum bankans óbreyttum þá Líkur hafa að okkar áliti einnig minnkað á að vextir verði yfir höfuð lækkaðir frekar á komandi ársfjórðungum.