Fréttir Greiningar
Óbreyttir stýrivextir í takti við spár
18.03.2015 10:27
Fremur tíðindalaus yfirlýsing
Nefndin bendir á í yfirlýsingu sinni nú að verðbólguvæntingar, sem lækkuðu í upphafi árs, hafi hækkað á ný undanfarið, og mögulega endurspeglar það væntingar um að niðurstaða komandi kjarasamninga muni ekki samrýmast verðbólgumarkmiðinu.
Seðlabankastjóri sagði á kynningarfundi vegna vaxtaákvörðunarinnar í morgun að varðandi framvirku leiðsögnina í yfirlýsingu nefndarinnar að fram að næsta fundi gæti ýmislegt komið sem væri óvænt og gæti breytt myndinni talsvert. Til að mynda gætu niðurstöður kjarasamninga breytt myndinni verulega varðandi næstu skref peningastefnunefndar í peningastjórnuninni. Hann sagði að framvirku leiðsögninni bæri því ekki að taka of bókstaflega.
Hagvöxtur á síðasta ári í takti við spá bankans
Nefndin bendir á að hagvöxtur á síðasta ári hafi samkvæmt nýbirtum bráðabirgðatölum Hagsofunnar hafi verið í takti við það sem bankinn áætlaði í sinni nýjustu þjóðhagsspá, sem birt var samhliða vaxtaákvörðuninni í byrjun febrúar sl. Tölur Hagstofunnar benda til þess að hagvöxtur sl. árs hafi verið 1,9% en Seðlabankinn áætlaði 2,0% vöxt í febrúarspánni. Staðfesta nýjar tölur Hagstofunnar það að fyrri tölur þeirra hafi falið í sér vanmat á hagvexti. Spáir Seðlabankinn því að hagvöxtur þessa árs verði 4,2% og 2,8% á næsta ári.
Breytir ekki spá okkar um óbreytta stýrivexti út árið
Næsta vaxtaákvörðun er 13. maí nk. Nokkur tími er því nú á milli vaxtaákvarðana og alveg hugsanlegt að niðurstaða kjarasamninga verði komin fyrir ákvörðunina í maí. Við reiknum, líkt og áður, með óbreyttum stýrivöxtum út þetta ár. Fari kjarasamningar hins vegar úr böndunum má reikna með því að bankinn muni bregðast við með hækkun stýrivaxta.
Líkt og áður reiknum við með því að peningastefnunefndin bregðist við vaxandi verðbólgu, vaxandi framleiðsluspennu í hagkerfinu og minnkandi peningalegu aðhaldi með hækkun stýrivaxta bankans um 0,75 prósentustig á næsta ári.
Stýrivaxtaspá okkar má nálgast hér.