Fréttir Greiningar
Íbúðaverð að hækka
25.10.2013 11:20
Markaðsverð íbúðarhúsnæðis hækkaði um 0,1% á milli september og október í ár samkvæmt tölum sem Hagstofan birti í morgun. Er það í takti við okkar spá. Í október í fyrra lækkaði það um 0,7% frá fyrri mánuði, og fer tólf mánaða hækkunartakturinn þar með úr 6,0% í 6,9% á milli mánaða. Síðustu tólf mánuði hefur verð íbúðarhúsnæðis hækkað um 3,6% að raunvirði. Hefur nafnverðshækkun húsnæðis yfir tólf mánaða tímabil ekki verið hraðari síðan í júní 2012 og raunverðhækkunin ekki verið hraðari síðan í upphafi árs 2012.
Veltan að aukast
Samhliða þessu hefur velta með íbúðarhúsnæði verið að aukast, en hún var 35% meiri á höfuðborgarsvæðinu í september síðastliðnum en í sama mánuði en í fyrra. Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir á svæðinu jukust um 24% á tímabilinu. Á landsbyggðinni (Akureyri, Árborg, Akranes og Reykjanesbær) nam veltuaukningin á tímabilinu um 31% og fjölgun þinglýstra kaupsamninga rúm 36%.
Verðbólgan étur upp mest af nafnverðhækkuninni
Hefur nafnverð íbúðarhúsnæðis hækkað um 22,5% frá því að það fór hvað lægst eftir hrun í mars 2010. Verðbólgan hefur á tímabilinu verið talsverð og étið upp stærstan hluta af þessari nafnverðshækkun. Þannig hefur raunverð íbúðarhúnsæðis hækkað um 6,8% frá mars 2010.