Fréttir Greiningar

Spáum óbreyttum stýrivöxtum 20. mars

15.03.2019 09:55

Greining Íslandsbanka hefur gefið út nýja stýrivaxtaspá. 

Helstu atriði:

  • Spáum óbreyttum stýrivöxtum 20. mars
  • Verðbólguhorfur hafa skánað og verðbólguálag á markaði lækkað
  • Efnahagshorfur til skemmri tíma tvísýnni en áður
  • Enn umtalsverður vaxtamunur við útlönd
  • Óbreyttir vextir út áratuginn?

Frekari vaxtahækkun út af borðinu?

Við spáum óbreyttum stýrivöxtum við næstu vaxtaákvörðun peningastefnunefndar Seðlabankans, sem kynnt verður þann 20. mars næstkomandi. Meginvextir bankans verða samkvæmt því áfram 4,50%. 

Einhugur var um óbreytta stýrivexti við síðustu vaxtaákvörðun peningastefnunefndar Seðlabankans. Var það í fyrsta sinn frá október síðastliðnum sem enginn nefndarmaður lagðist gegn tillögu Seðlabankastjóra um vaxtastigið. Horfur á minnkandi spennu í hagkerfinu og lækkun verðbólguvæntinga vógu þar þyngra en áhyggjur af tiltölulega dökkum skammtímahorfum um verðbólgu.

Frá vaxtaákvörðuninni í febrúar hafa skammtíma verðbólguhorfur heldur batnað og efnahagshorfur versnað. Vaxandi vísbendingar eru um að framleiðslupenna gæti minnkað enn hraðar á yfirstandandi ári en Seðlabankinn spáði í febrúar. Þörfin fyrir peningalegt aðhald á næstunni virðist því fara heldur minnkandi á sama tíma og aðhaldið hefur þokast upp á við á a.m.k. suma mælikvarða. Trúlega mun peningastefnunefndin enn og aftur ítreka vilja sinn og getu til að halda verðbólgu og verðbólguvæntingum við markmið, sem geti kallað á aukið peningalegt aðhald á komandi mánuðum. Við teljum hins vegar að stýrivextir séu nokkuð líklegir til að haldast óbreyttir út þetta ár og að frekari hækkun vaxta sé sennilega út af borðinu í bráð nema launaþrýstingur verði óhóflega mikill í kjölfar kjarasamninga og/eða gengi krónu gefi umtalsvert eftir að nýju.

Stýrivaxtaspá mars 2019

Back

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?
Afhverju ekki?
Hætta við

Ábending þín er notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Íslandsbanka. Vantar þig aðstoð sem krefst þess að við svörum þér má hafa samband við Þjónustuver Íslandsbanka.

Netspjall