Fréttir Greiningar
Mikil samkeppni í flugi til landsins
17.03.2015 09:15
Stæða tölur benda jafnframt til þess að enn muni draga úr árstíðarsveiflum í komum til landsins. Myndin hér til hliðar sýnir hvernig sumarið hefur lækkað í hlutfalli af heildar ferðum til landsins á meðan aðrar árstíðir hafa hægt og rólega bætt í. Ef sú sterka sætanýting sem við höfum séð hjá íslensku flugfélögunum á fyrstu mánuðum ársins heldur áfram er jafnframt líklegt að vorið rísi hærra í hlutdeild en myndin hér til hliðar sýnir. Í þessu samhengi er vert að benda á að sætanýting í maí á síðast ári, þegar verkföll starfsmanna Icelandair stóðu sem hæst, var fremur slök sem styður enn fremur væntingar um sterkari tölur í þessum mánuðum í samanburði áranna.
Icelandair stærst á Keflavíkurflugvelli
WOW inn á Bandaríkjamarkað
easyJet áfram í sókn
Yfir sumarið í heild verður easyJet með um 5% markaðshlutdeild. Félagið hefur verið að auka nokkuð hratt við hlutdeild sína og þá sérstaklega utan háannatíma. Bróður hluti ferða easyJet er inn á Bretlandsmarkað en engin þjóð sótti landið stífar en Bretar á síðasta ári, enda komu tæp 19% ferðamanna þaðan. Næst fjölmennasti hópurinn voru Bandaríkjamenn og því kemur það aukna framboð á þann markað, er við fjölluðum um hér að ofan, ekki á óvart. Þriðji stærsti hópurinn til að sækja landið heim voru Þjóðverjar en um 9% ferðamanna komu þaðan. Þýsku flugfélögin hafa þannig sýnt Keflavík töluverðan áhuga. Airberlin er nú fjórða stærsta flugfélagið á Keflavíkurflugvelli en hingað fljúga einnig Germanwings og Lufthansa. Ekkert eitt flugfélag eykur jafn mikið við framboð sitt og Lufthansa yfir sumarúthlutunartímabilið en framboð þeirra nú er meira en þrisvar sinnum framboð síðasta sumars. Á sama tíma er bara eitt flugfélag að markverðri stærð sem sækir um færri stæði þetta árið en það er Norwegian. Norwegian mun ekki fljúga milli Íslands og Kaupmannahafnar í sumar og bítast því Icelandair og WOW ein flugfélaga um þá flugleið.
Flestir farþegar til Bandaríkjanna
Stórt ferðamannaár og mikil samkeppni í flugi
Ríflega 26 þús. ferðamenn á degi hverjum
Út frá ofangreindri spá okkar um fjölda ferðamanna og meðal dvalartíma jafngildir það að hér á landi séu um 26 þús. ferðamenn á degi hverjum allt árið. Sem hlutfall af heildar íbúafjölda að viðbættum meðalfjölda ferðamanna er það 7,2%. Þetta hlutfall hefur oft verið notað sem vísbending um það hversu stór ferðamannaþjónustan er í hinum ýmsu löndum. Er Ísland þar í sjöunda sæti á milli Mónakó og Möltu. Fyrir ofan okkur á listanum eru einungis smáríki á borð við Vatíkanið sem er efst á listanum, Andorra sem er númer tvö og Bahama eyjar sem eru númer fimm. Þess má geta að af stóru ríkjunum eru engin með nálægt því jafn hátt ferðamannahlutfall og Ísland. Þannig er Spánn með 2,2%, Frakkland með 2,0% og Ítalía með 1,3% svo einhver dæmi séu tekin. Af smærri ríkjum má nefna Eistland með 4,0%, Austurríki með 3,8%, Írland með 3,7% og Danmörk með 2,5%. Þess má geta að hér er um meðaltalstölu fyrir árið að ræða en vegna mikillar árstíðarsveiflu í fjölda ferðamanna fer hlutfalli mun hærra yfir sumarmánuðina. Þannig áætlum við að í sumar verði ferðamenn að meðaltali ríflega 16% þeirra sem eru hér á landi.
Fyrir áhugasama má finna frekari upplýsingar um þróun og horfur hjá íslenskri ferðaþjónustu í skýrslunni Íslensk ferðaþjónusta. Þá er mögulegt að horfa á upptöku með kynningu á efni skýrslunnar hér.