Fréttir Greiningar

Erlend staða þjóðarbúsins neikvæð um hálfa landsframleiðslu

04.06.2014 12:15

nullMiðað við nýbirt mat Seðlabankans á erlendri stöðu þjóðarbúsins var undirliggjandi hrein erlend staða neikvæð um sem nemur 51% af áætlaðri vergri landsframleiðslu (VLF) í lok mars síðastliðins. Er það lítilsháttar bati frá áramótum en þá var hreina staðan metin neikvæð um 53% af VLF. Undirliggjandi erlend staða þjóðarbúsins virðist því viðráðanleg líkt og í fyrri tölum, og niðurfærsla á hluta eigna slitabúa gömlu bankanna við slit þeirra myndi bæta stöðuna frekar.

Gömlu bankarnir skipta sköpum

Innlánsstofnanir í slitameðferð hafa mikil áhrif á reiknaða erlenda stöðu þjóðarbúsins, enda eru þær færðar til bókar hjá Seðlabankanum með þeim hætti að skuldir búanna eru á nafnvirði líkt og eignir svo lengi sem slitum búanna er ólokið. Miðað við þá framsetningu námu erlendar eignir þjóðarbúsins 255% af VLF og erlendar skuldir 666% af VLF í lok mars síðastliðins, og erlend staða þjóðarbúsins var því neikvæð um ríflega fjórfalda landsframleiðslu. Ljóst er hins vegar að skuldir slitabúa gömlu bankanna verða færðar verulega niður þegar að slitum þeirra kemur, óháð því með hvaða hætti slitin verða framkvæmd. Að slitabúunum undanskildum var hrein staða við útlönd neikvæð um 11% af VLF í lok mars, en mat Seðlabankans er að slitin muni hafa neikvæð áhrif á erlendu stöðuna sem nemur 43% af VLF. Slit annarra þrotabúa munu svo að mati bankans hafa jákvæð áhrif sem nemur 3% af VLF. Samkvæmt þessu er undirliggjandi hrein erlend staða þjóðarbúsins því neikvæð um 51% af VLF eins og fyrr segir.

Niðurstaða slita gömlu banka hefur áhrif

Rétt er að hafa í huga að framangreindir útreikningar Seðlabankans eru miðaðir við að ekki verði um neina niðurfærslu að ræða á þeim innlendu eignum slitabúanna sem koma í hlut erlendra kröfuhafa. Verði um niðurfærslu á þessum eignum að ræða, hvort sem hún á sér stað við nauðasamninga búanna eða í kjölfar gjaldþrotaskipta þeirra, mun hreina erlenda staðan verða að sama skapi betri en ofangreindar tölur Seðlabankans gefa til kynna. Oft er miðað við að hreinar erlendar skuldir hagkerfa yfir 60% séu líklegri til að valda búsifjum en skuldir undir því marki, þótt það sé vissulega ekki einhlítt. Í því ljósi virðist erlend staða íslenska þjóðarbúsins því viðráðanleg, og komi til afskrifta á erlendum skuldum í tengslum við uppgjör slitabúanna, sem virðist nokkuð líkleg óháð fyrirkomulagi slitanna, mun staðan að sama skapi verða viðráðanlegri hvað varðar áhrif á greiðslujöfnuð til framtíðar.

Back

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?
Afhverju ekki?
Hætta við

Ábending þín er notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Íslandsbanka. Vantar þig aðstoð sem krefst þess að við svörum þér má hafa samband við Þjónustuver Íslandsbanka.

Netspjall