Fréttir Greiningar

Meiri afgangur en nokkru sinni fyrr af þjónustujöfnuði

02.12.2014 08:12

Þjónustuviðskipti við útlönd skiluðu meiri afgangi nú á þriðja fjórðungi en þau hafa nokkru sinnum áður gert á einum ársfjórðungi. Alls námu tekjur af þjónustuútflutningi 173,3 mö. kr. á fjórðungnum en gjöld vegna þjónustuinnflutnings voru 93,1 ma. kr. samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofunnar sem  birtar voru í gær. Hljóðar afgangurinn því upp á 80,2 ma. kr., sem er rúmlega 10 mö. kr. meiri afgangur en á sama tíma í fyrra. 

Ferðaþjónustan í lykilhlutverki

Ekki kemur á óvart miðað við það mikla ferðamannainnflæði sem verið hefur hér á landi að það hafi verið ferðaþjónustan sem spilaði lykilhlutverk í ofangreindum tölum. Er hún nú í fyrsta sinn stærsti þjónustuliðurinn bæði út- og innflutningsmegin. Alls nam útflutningur hennar 66,9 mö. kr. en innflutningur 29,5 mö. kr. Hljóðar afgangur af ferðaþjónustu þar með upp á 37,5 ma. kr., sem er rúmlega 10 ma. kr. aukning frá sama tímabili í fyrra.

Þetta rímar mjög vel við tölur Ferðamálastofu Íslands, en skv. þeim fóru rúmlega 386 þúsund erlendir gestir frá landinu um Keflavíkurflugvöll (KEF) á þriðja ársfjórðungi, sem er aukning upp á 18% frá sama tímabili í fyrra. Brottförum Íslendinga fjölgaði einnig, eða um tæp 10% á milli ára, en alls héldu um 114 þúsund Íslendingar af landi brott á þriðja fjórðungi nú í ár. 

Samgöngur og flutningar skiluðu afgangi upp á 47,4 ma. kr., sem er 1,2 mö. kr. meiri afgangur en hann var ásama tímabili í fyrra. Skilaði ferðaþjónustan ásamt fólks- og vöruflutningum þar með samanlagt 84,9 mö. kr. í kassann á þriðja ársfjórðungi. Önnur viðskiptaþjónusta var í halla eins og oft áður, en sá liður endurspeglar að töluverðum hluta kostnaðinn við að afla þjónustutekna, t.d. leigu á flugvélum og skipum. Var sá liður neikvæður um 17,3 ma. kr. sem er 1,5 ma. kr. meiri halli en á sama tímabili í fyrra. 

Dregur úr afgangi af vöru- og þjónustujöfnuði

Nú liggja fyrir tölur um tvo af þremur helstu undirliðum viðskiptajafnaðar á þriðja fjórðungi ársins. Halli var á vöruskiptum upp á 9,9 ma. kr. á tímabilinu, og er það í fyrsta sinn frá hruni sem slíkt atvikast á þriðja ársfjórðungi. Nemur samanlagður afgangur af vöru- og þjónustuviðskiptum á þriðja ársfjórðungi þar með 70,3 mö. kr. Þetta er 3 ma. kr. minni afgangur en á sama tímabili í fyrra, sem augljóslega má rekja til vöruskipta, en engu að síður er hér um næstmesta afgang að ræða af vöru- og þjónustuviðskiptum frá upphafi. 

Vöruskipti skýra minni afgang á árinu

Á fyrstu þremur fjórðungum ársins er afgangur af vöru- og þjónustuviðskiptum við útlönd komin upp í 104,2 ma. kr. samanborið við 127,4 ma. kr. í fyrra. Minni afgang má alfarið rekja til óhagstæðari þróunar vöruskipta, en halli mældist á þeim jöfnuði á tímabilinu upp á 24,9 ma. kr. og hefur hann ekki verið meiri frá því fyrir hrun. Á hinn bóginn var um metafgang að ræða af þjónustujöfnuði á tímabilinu, en hann hljóðaði upp á 129,1 ma. kr. sem aðeins meiri afgangur en var á sama tímabili í fyrra. Í dag kl. 16:00 mun Seðlabankinn birta tölur um greiðslujöfnuð við útlönd á þriðja ársfjórðungi, og verður fróðlegt að sjá hvernig  þáttatekjujöfnuður, og þar með niðurstaða viðskiptajafnaðar, hefur þróast á ársfjórðungnum.

Back

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?
Afhverju ekki?
Hætta við

Ábending þín er notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Íslandsbanka. Vantar þig aðstoð sem krefst þess að við svörum þér má hafa samband við Þjónustuver Íslandsbanka.

Netspjall