Frétt

LEIÐRÉTTING: ÍSLANDSBANKI HF.: NIÐURSTAÐA ÚTBOÐS SÉRTRYGGÐRA SKULDABRÉFA


Leiðrétting á frétt sem birt var 16:57 12.12.2017 GMT. Heildarfjárhæð útistandandi sértryggðra skuldabréfa var leiðrétt frá fyrri frétt.
Íslandsbanki hf. lauk í dag útboði á sértryggðum skuldabréfum.

Heildareftirspurn í útboðinu var 1.340 m.kr.

Samþykkt tilboð í verðtryggða flokkinn ISLA CBI 24 voru samtals 740 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 2,57%. Heildartilboð voru 860 m.kr. á bilinu 2,50% - 2,58%. Heildarstærð flokksins verður 18.640 m.kr. eftir útgáfuna.

Samþykkt tilboð í verðtryggða flokkinn ISLA CBI 30 voru samtals 480 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 2,44%. Heildartilboð voru 480 m.kr. á bilinu 2,39% - 2,44%. Heildarstærð flokksins verður 15.460 m.kr. eftir útgáfuna.

Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta í Nasdaq Iceland þann 19. desember næstkomandi.

Það sem af er ári 2017 hefur Íslandsbanki gefið út sértryggð skuldabréf fyrir 41.700 m.kr. Heildarfjárhæð útistandandi sértryggðra skuldabréfa Íslandsbanka að afloknu útboði verður að nafnverði 106.400 m.kr.

Til baka

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?
Afhverju ekki?
Hætta við

Ábending þín er notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Íslandsbanka. Vantar þig aðstoð sem krefst þess að við svörum þér má hafa samband við Þjónustuver Íslandsbanka.

Netspjall