Frétt

Islandsbanki hf.: Niðurstaða útboðs sértryggðra skuldabréfa

Íslandsbanki hf. lauk í dag útboði á sértryggðum skuldabréfum.

Heildareftirspurn í útboðinu var 2.500 m.kr.

Samþykkt tilboð í óverðtryggða flokkinn ISLA CB 23 voru samtals 200 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 5,49%. Heildartilboð voru 700 m.kr. á bilinu 5,49% - 5,55%. Heildarstærð flokksins verður 8.560 m.kr. eftir útgáfuna.

Samþykkt tilboð í verðtryggða flokkinn ISLA CBI 24 voru samtals 1.160 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 2,72%. Heildartilboð voru 1.160 m.kr. á bilinu 2,68% - 2,72%. Heildarstærð flokksins verður 25.160 m.kr. eftir útgáfuna.

Samþykkt tilboð í verðtryggða flokkinn ISLA CBI 30 voru samtals 640 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 2,70%. Heildartilboð voru 640 m.kr. á bilinu 2,66% - 2,70%. Heildarstærð flokksins verður 21.980 m.kr. eftir útgáfuna.

Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta í Nasdaq Iceland þann 27. júní næstkomandi. Heildarfjárhæð útistandandi sértryggðra skuldabréfa Íslandsbanka að afloknu útboði verður að nafnverði 119.640 m.kr.

Nánari upplýsingar veita: Fjárfestatengsl - Gunnar S. Magnússon, ir@islandsbanki.is og í síma 440 4665.

Til baka

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?
Afhverju ekki?
Hætta við

Ábending þín er notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Íslandsbanka. Vantar þig aðstoð sem krefst þess að við svörum þér má hafa samband við Þjónustuver Íslandsbanka.

Netspjall