Frétt

Íslandsbanki lýkur víxlaútboði

Íslandsbanki hf. lauk í dag útboði á einum víxli til 6 mánaða. Flokkurinn getur að hámarki orðið 1,5 ma. kr. að nafnvirði. Útboðinu var þannig háttað að boðið var í magn á fyrirfram ákveðnu verði, á 5,95% flötum vöxtum (verð: 97,0642).

Tilboðum var tekið að fjárhæð 840.000.000. kr. að nafnvirði. Fyrir útboðið voru útistandandi víxlar Íslandsbanka að fjárhæð 7,88 ma. kr.

Bréfin voru seld til breiðs hóps fjárfesta. Stefnt er að töku víxlanna til viðskipta í Nasdaq OMX Iceland þann 15. apríl næstkomandi.

Nánari upplýsingar veita:

Fjárfestatengill – Tinna Molphy, tinna.molphy@islandsbanki.is og í síma 440 3187 / 844 3187.
Upplýsingafulltrúi - Dögg Hjaltalín, dogg.hjaltalin@islandsbanki.is og í síma 440 3925.

Til baka

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?
Afhverju ekki?
Hætta við

Ábending þín er notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Íslandsbanka. Vantar þig aðstoð sem krefst þess að við svörum þér má hafa samband við Þjónustuver Íslandsbanka.

Netspjall