Frétt

Íslandsbanki fyrsta fjármálafyrirtækið til að gefa út víxla

Íslandsbanki hf. lauk í dag útboði á tveimur víxlum til 3 og 6 mánaða. Hvor flokkur getur að hámarki orðið 1.500.000.000 krónur að nafnvirði. Útboðinu var þannig háttað að boðið var í magn á fyrirfram ákveðnu verði. 3 mánaða víxillinn var boðinn út á 6,15% flötum vöxtum (verð: 98,4692) og 6 mánaða víxillinn á 6,30% flötum vöxtum (verð: 96,9133).

Umframeftirspurn var eftir 3 mánaða víxlunum og bárust alls tilboð að fjárhæð 2.740.000.000 krónur að nafnvirði. Tilboðum var tekið að fjárhæð 1.500.000.000 krónur að nafnvirði. Umframeftirspurn var einnig eftir 6 mánaða víxlunum og bárust alls tilboð að fjárhæð 1.550.000.000. Tilboðum var tekið í 6 mánaða víxilinn að fjárhæð 1.500.000.000 krónur að nafnvirði.

Bréfin voru seld til breiðs hóps fjárfesta. Stefnt er á töku víxlanna til viðskipta í Nasdaq OMX Iceland þann 5. apríl næstkomandi en í kjölfarið verður Íslandsbanki fyrsta fjármálafyrirtækið til að gefa út víxla í íslensku kauphöllinni síðan á haustmánuðum 2008.

Til baka

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?
Afhverju ekki?
Hætta við

Ábending þín er notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Íslandsbanka. Vantar þig aðstoð sem krefst þess að við svörum þér má hafa samband við Þjónustuver Íslandsbanka.

Netspjall