Frétt

Íslandsbanki hf.: Niðurstaða útboðs sértryggðra skuldabréfa-

Íslandsbanki hf. lauk í dag útboði á sértryggðum skuldabréfum.

Heildareftirspurn í útboðinu var 5.540 m.kr.

Samþykkt tilboð í verðtryggða flokkinn ISLA CBI 24 voru samtals 1.000 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 2,70%. Heildartilboð voru 1.080 m.kr. á bilinu 2,70% - 2,72%. Heildarstærð flokksins verður 16.220 m.kr. eftir útgáfuna.

Samþykkt tilboð í verðtryggða flokkinn ISLA CBI 30 voru samtals 4.400 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 2,73%. Heildartilboð voru 4.460 m.kr. á bilinu 2,71% - 2,74%. Heildarstærð flokksins verður 14.060 m.kr. eftir útgáfuna.

Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta í Nasdaq Iceland þann 26. september næstkomandi.

Það sem af er ári 2017 hefur Íslandsbanki gefið út sértryggð skuldabréf fyrir 37.880 m.kr. Heildarfjárhæð útistandandi sértryggðra skuldabréfa Íslandsbanka að afloknu útboði verður að nafnverði 102.580 m.kr.

Til baka

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?
Afhverju ekki?
Hætta við

Ábending þín er notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Íslandsbanka. Vantar þig aðstoð sem krefst þess að við svörum þér má hafa samband við Þjónustuver Íslandsbanka.

Netspjall