Frétt

Islandsbanki hf. : Flokkar sértryggðra skuldabréfa stækkaðir

Íslandsbanki hf. hefur í dag lokið útboði á útistandandi flokkum sértryggðra skuldabréfa sem skráðir eru á NASDAQ OMX Iceland. Verðtryggða sjö ára útgáfan, ISLA CBI 19 var stækkuð um 600.000.000 kr. á ávöxtunarkröfunni 2,82 % og verðtryggða tólf ára útgáfan, ISLA CBI 24 um 380.000.000 kr. á ávöxtunarkröfunni 2,89 %.

Heildarstærð ISLA CBI 19 útgáfunnar er nú orðin 6,63 ma. kr. og ISLA CBI 24 er orðin 8,47 ma. kr. Alls hefur Íslandsbanki gefið út fimm flokka sértryggðra skuldabréfa samtals að upphæð 23,32 ma. kr. frá fyrstu útgáfu bankans á slíkum bréfum í desember 2011.

Bréfin voru seld til breiðs hóps fagfjárfesta. Heildareftirspurnin í útboðinu var 1,52 ma. kr., en 64% tilboða var tekið. Stefnt er á að bréfin verði tekin til viðskipta í NASDAQ OMX Iceland þann 18. desember næstkomandi. Viðskiptavakt fyrir alla flokka sértryggðra skuldabréf Íslandsbanka er á vegum MP banka.

Bréfin eru gefin út í samræmi við lög nr. 11 frá 2008 um sértryggð skuldabréf þar sem strangar kröfur eru gerðar til útgefenda. Tryggingasafnið að baki skuldabréfunum skal standast sérstök vikuleg álagspróf með tilliti til vaxta og gengis gjaldmiðla. Þá hefur Fjármálaeftirlitið sérstakt eftirlit með útgáfunum, sem einnig tilnefnir sjálfstæðan skoðunarmann til að sinna eftirliti. Skýrslur um tryggingasafnið að baki sértryggðu skuldabréfunum eru gefnar út ársfjórðungslega og má finna á vef Íslandsbanka.

Til baka

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?
Afhverju ekki?
Hætta við

Ábending þín er notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Íslandsbanka. Vantar þig aðstoð sem krefst þess að við svörum þér má hafa samband við Þjónustuver Íslandsbanka.

Netspjall