Frétt

Islandsbanki hf. : Ársuppgjör 2015 birt þriðjudaginn 23. febrúar 2016

Íslandsbanki mun birta ársuppgjör 2015 fyrir opnun markaða þriðjudaginn 23. febrúar 2016.

Afkomufundur á íslensku

Síðar þann dag, þriðjudaginn 23. febrúar kl. 12.30, munu Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka, og Jón Guðni Ómarsson, fjármálastjóri, kynna afkomu bankans á opnum fjárfestafundi og svara fyrirspurnum. Fundurinn fer fram á íslensku og er haldinn í höfuðstöðvum bankans að Kirkjusandi.

Skrá mig á fjárfestafund á Kirkjusandi.

Símafundur á ensku

Einnig er markaðsaðilum boðið upp á símafund kl. 14.00 á ensku. Farið verður yfir helstu atriði í íslenskum efnahagsmálum og afkomu bankans. Vinsamlegast skráið ykkur á símafundinn með að senda póst á ir@islandsbanki.is. Fundargögn og aðgangsorð vegna símafundar verða send út til skráðra aðila 2 tímum fyrir fundinn.

Öll gögn má nálgast á vef fjárfestatengsla www.islandsbanki.is/fjarfestatengsl.

Upplýsingar um fjárhagsdagatal bankans og þögul tímabil má finna hér: http://www.islandsbanki.is/um-islandsbanka/fjarfestatengsl/fjarhagsdagatal/.

 

Nánari upplýsingar veita:

Til baka

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?
Afhverju ekki?
Hætta við

Ábending þín er notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Íslandsbanka. Vantar þig aðstoð sem krefst þess að við svörum þér má hafa samband við Þjónustuver Íslandsbanka.

Netspjall