Frétt

Islandsbanki hf. : Ráðgefandi álit EFTA dómstólsins

EFTA dómstóllinn birti í dag ráðgefandi álit á framkvæmd verðtryggingar hér á landi. Álit dómstólsins er að sú framkvæmd, sem tíðkaðist í gildistíð eldri laga um neytendalán, að miða við 0% verðbólgu við útreikning heildarkostnaðar lántaka stangist á við neytendalánatilskipun Evrópusambandsins ef þekkt verðbólgustig er annað. Í álitinu er ekki mælt fyrir um hvaða afleiðingar það hefur, heldur er þar tekið fram að það sé íslenskra dómstóla að meta það. Álit EFTA verður notað við úrlausn dómsmáls sem rekið er fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur. Á þessari stundu er ekki unnt að segja til um hvaða þýðingu þetta ráðgefandi álit EFTA dómstólsins hefur við úrlausn þess máls eða hvaða fordæmisgildi slík úrlausn mun hafa.

Hafi endanleg niðurstaða íslenskra dómstóla áhrif á gildi verðtryggingarákvæða lánssamninga getur það haft fjárhagsleg áhrif á Íslandsbanka, en það er mat bankans að eigið fé hans muni við slíkar aðstæður engu að síður uppfylla eiginfjárviðmið Fjármálaeftirlitsins. Efnahagur Íslandsbanka er traustur þar sem bankinn er með yfir 200 milljarða króna í heildar eigið fé og eiginfjárhlutfall bankans er nú 29,4%, sem er vel yfir eiginfjárviðmiðum Fjármálaeftirlitsins.

Til baka

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?
Afhverju ekki?
Hætta við

Ábending þín er notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Íslandsbanka. Vantar þig aðstoð sem krefst þess að við svörum þér má hafa samband við Þjónustuver Íslandsbanka.

Netspjall