Frétt

Útboði lokið á tveimur víxlum til 3 og 6 mánaða

Íslandsbanki hf. lauk í dag útboði á tveimur víxlum til 3 og 6 mánaða. Hvor flokkur getur að hámarki orðið 1.500 m.kr. að nafnvirði. Útboðinu var þannig háttað að boðið var í magn á fyrirfram ákveðnu verði. 3 mánaða víxillinn var boðinn út á 6,10% flötum vöxtum (verð: 98,4650) og 6 mánaða víxillinn á 6,30% flötum vöxtum (verð: 96,8804).

Tilboðum var tekið í 3 mánaða víxilinn að fjárhæð 920 m.kr. að nafnvirði og að fjárhæð 700 m.kr. að nafnvirði í 6 mánaða víxilinn.

Bréfin voru seld til breiðs hóps fjárfesta. Stefnt er á töku víxlanna til viðskipta í Nasdaq OMX Iceland þann 15. maí næstkomandi.

Til baka

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?
Afhverju ekki?
Hætta við

Ábending þín er notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Íslandsbanka. Vantar þig aðstoð sem krefst þess að við svörum þér má hafa samband við Þjónustuver Íslandsbanka.

Netspjall