Frétt

Islandsbanki hf.: Niðurstaða útboðs sértryggðra skuldabréfa

Íslandsbanki hf. lauk í dag útboði á sértryggðum skuldabréfum.

Heildareftirspurn í útboðinu var 1.380 m.kr.

Samþykkt tilboð í verðtryggða flokkinn ISLA CBI 24 voru samtals 300 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 2,63%. Heildartilboð voru 960 m.kr. á bilinu 2,62% - 2,70%. Heildarstærð flokksins verður 24.000 m.kr. eftir útgáfuna.

Samþykkt tilboð í verðtryggða flokkinn ISLA CBI 30 voru samtals 160 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 2,63%. Heildartilboð voru 420 m.kr. á bilinu 2,62% - 2,67%. Heildarstærð flokksins verður 21.340 m.kr. eftir útgáfuna.

Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta í Nasdaq Iceland þann 31. Maí næstkomandi.

Heildarfjárhæð útistandandi sértryggðra skuldabréfa Íslandsbanka að afloknu útboði verður að nafnverði 117.640 m.kr.

Nánari upplýsingar veita: Fjárfestatengsl - Gunnar S. Magnússon, ir@islandsbanki.is og í síma 440 4665.

Til baka

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?
Afhverju ekki?
Hætta við

Ábending þín er notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Íslandsbanka. Vantar þig aðstoð sem krefst þess að við svörum þér má hafa samband við Þjónustuver Íslandsbanka.

Netspjall