Frétt

Islandsbanki hf. lýkur víxlaútboði

Íslandsbanki hf. lauk í dag útboði á víxlum til 3 og 6 mánaða. Tilboðum var tekið fyrir 2.560 m.kr. en heildareftirspurn í útboðinu var 5.580 m.kr.

Seldir voru víxlar í 3 mánaða flokkinn ISLA 16 0815 að nafnvirði 1.900 m.kr. á 6,39% flötum vöxtum og í 6 mánaða flokkinn ISLA 16 1124 seldust að nafnvirði 660 m.kr. á 6,45% flötum vöxtum.

Fyrir útboðið voru útistandandi víxlar Íslandsbanka að fjárhæð 10,6 ma. kr. Stefnt er að töku víxlanna til viðskipta í Nasdaq Iceland þann 20. maí næstkomandi en þá eru 2.560 m.kr. á gjalddaga í ISLA 16 0520.

Til baka

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?
Afhverju ekki?
Hætta við

Ábending þín er notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Íslandsbanka. Vantar þig aðstoð sem krefst þess að við svörum þér má hafa samband við Þjónustuver Íslandsbanka.

Netspjall