Frétt

Islandsbanki hf. : Ársuppgjör 2016 birt föstudaginn 24. febrúar 2017

Íslandsbanki mun birta ársuppgjör 2016 fyrir opnun markaða föstudaginn 24. febrúar 2017. 

Afkomufundur á íslensku

Síðar þann dag kl. 12.30, munu Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka, og Jón Guðni Ómarsson, fjármálastjóri, kynna afkomu bankans á opnum fjárfestafundi og svara fyrirspurnum. Fundurinn fer fram á íslensku og er haldinn í höfuðstöðvum bankans að Hagasmára 3. Boðið verður upp á veitingar.  

Skrá mig á fjárfestafund.

Símafundur á ensku

Einnig er markaðsaðilum boðið upp á símafund kl. 14.00 á ensku. Farið verður yfir helstu atriði í íslenskum efnahagsmálum og afkomu bankans. Vinsamlegast skráið ykkur á símafundinn með að senda póst á ir@islandsbanki.is. Fundargögn og aðgangsorð vegna símafundar verða send út til skráðra aðila 2 tímum fyrir fundinn. 

Öll gögn má nálgast á vef fjárfestatengsla www.islandsbanki.is/fjarfestatengsl.  

Upplýsingar um fjárhagsdagatal bankans og þögul tímabil má finna hér

 

Til baka

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?
Afhverju ekki?
Hætta við

Ábending þín er notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Íslandsbanka. Vantar þig aðstoð sem krefst þess að við svörum þér má hafa samband við Þjónustuver Íslandsbanka.

Netspjall