Frétt

Íslandsbanki hf. : Ársuppgjör 2014 birt þann 24. febrúar

Íslandsbanki mun birta ársuppgjör 2014 fyrir opnun markaða þriðjudaginn 24. febrúar 2015.

Síðar þann dag, þriðjudaginn 24. febrúar kl. 16.00, munu Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka, og Jón Guðni Ómarsson, fjármálastjóri, kynna afkomu bankans á opnum fjárfestafundi og svara fyrirspurnum. Fundurinn fer fram á íslensku og er haldinn í höfuðstöðvum bankans að Kirkjusandi. Boðið verður upp á léttar veitingar. 

Skrá mig á fjárfestafund á Kirkjusandi.

Einnig er markaðsaðilum boðið upp á símafund kl. 14.00 á ensku. Farið verður yfir helstu atriði í íslenskum efnahagsmálum og afkomu bankans. Vinsamlegast skráið ykkur á símafundinn með að senda póst á ir@islandsbanki.is. Fundargögn og aðgangsorð vegna símafundar verða send út til skráðra aðila 2 tímum fyrir fundinn.

Öll gögn má nálgast á vef fjárfestatengsla www.islandsbanki.is/fjarfestatengsl.   

Upplýsingar um fjárhagsdagatal bankans og þögul tímabil má finna hér: http://www.islandsbanki.is/um-islandsbanka/fjarfestatengsl/fjarhagsdagatal/.

Til baka

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?
Afhverju ekki?
Hætta við

Ábending þín er notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Íslandsbanka. Vantar þig aðstoð sem krefst þess að við svörum þér má hafa samband við Þjónustuver Íslandsbanka.

Netspjall