Frétt

Íslandsbanki lýkur víxlaútboði

Íslandsbanki hf. lauk í dag útboði á víxlum til 3, 5 og 6 mánaða. Tilboðum var tekið fyrir 2,60 ma. kr. en heildareftirspurn í útboðinu var 4,78 ma. kr.

Seldir voru víxlar í flokki ISLA 16 0212 að nafnvirði 760 m.kr. á 6,25% flötum vöxtum (verð 98,3271), í flokki ISLA 16 0415 að nafnvirði 720 m.kr. á 6,49% flötum vöxtum (verð 97,1794) og í flokki ISLA 16 0520 að nafnvirði 1.120 m.kr. á 6,49% flötum vöxtum (verð 96,5871).

Fyrir útboðið voru útistandandi víxlar Íslandsbanka að fjárhæð 7,5 ma. kr. Stefnt er að töku víxlanna til viðskipta í Nasdaq Iceland þann 6. nóvember næstkomandi.

Til baka

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?
Afhverju ekki?
Hætta við

Ábending þín er notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Íslandsbanka. Vantar þig aðstoð sem krefst þess að við svörum þér má hafa samband við Þjónustuver Íslandsbanka.

Netspjall