Frétt

Íslandsbanki hf: Íslandsbanki gefur út skuldabréf fyrir 300 milljónir evra á 75 punkta álagi yfir millibankavexti í evrum

Íslandsbanki hefur í dag gefið út skuldabréf að fjárhæð 300 milljónir evra (um 38 milljarðar íslenskra króna) til 6 ára með innköllunarheimild af hálfu útgefenda eftir 5 ár (6NC5). Bréfið ber 1.125% fasta vexti sem jafngildir 75 punkta álagi yfir millibankavexti í evrum. 

Fjórföld eftirspurn var eftir útgáfunni sem nam 1.255 milljónum evra frá 121 fjárfesti. Skuldabréfin voru seld til fjölbreytts hóps fjárfesta, m.a. frá Bretlandi, meginlandi Evrópu, Norðurlöndunum og Asíu. Stefnt er að skráningu skuldabréfanna í Kauphöllina á Írlandi þann 19. janúar 2018.

Viðskiptin marka tímamót í rekstri Íslandsbanka en um er að ræða lengstu skuldabréfaútgáfu og bestu kjör erlendis sem íslensk fjármálastofnun hefur gefið út frá árinu 2008.

Útgáfan verður gefin út undir 2 milljarða dollara Global Medium Term Notes (GMTN) útgáfuramma bankans. Grunnlýsingu GMTN rammans ásamt viðaukum má finna á vefsíðu fjárfestatengsla: islandsbanki.is/fjarfestatengsl

Umsjónaraðilar útboðsins voru Goldman Sachs International, J.P. Morgan og Nomura.

Jón Guðni Ómarsson, fjármálastjóri Íslandsbanka:

"Þróun á vaxtaálagi á útistandandi skuldabréfum bankans í erlendri mynt hefur verið einkar hagstæð síðustu misseri og er það merki um mikið traust fjárfesta til Íslandsbanka og íslensks efnahagsumhverfis. Útgáfan í dag ber þess svo sannarlega merki en við erum einkar ánægð með þann mikla áhuga sem við fundum hjá fjárfestum."

Til baka

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?
Afhverju ekki?
Hætta við

Ábending þín er notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Íslandsbanka. Vantar þig aðstoð sem krefst þess að við svörum þér má hafa samband við Þjónustuver Íslandsbanka.

Netspjall