Frétt

Aðgerðir vegna peningamarkaðssjóða í samræmi við EES samninginn

Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) hefur komist að þeirri niðurstöðu að ákvörðun þáverandi stjórnar bankans um kaup á verðbréfum af peningamarkaðssjóði hafi ekki farið í bága við EES samninginn. Í tilkynningu frá ESA kemur fram að stofnunin líti svo á að ráðstafanirnar hafi verið nauðsynlegar til að endurbyggja traust á fjármálageiranum. Úrræðin hafi verið nauðsynleg og í samræmi við meðalhóf að því marki að vernda fjárfesta fyrir enn stærra tapi á sparifé sínu. 

Niðurstaða ESA nær til átta fjárfestingarsjóða sem reknir voru af dótturfélögum viðskiptabankanna þriggja. Alls keyptu bankarnir þrír eignir að fjárhæð 82,2 milljarða króna sem voru í vörslu 8 sjóða, þar af 75,4% hjá  Nýja Landsbankanum, 15,4% hjá  Nýja Glitni (nú Íslandsbanka)og 9,2% hjá Nýja Kaupþingi (nú Arion banka) samkvæmt tilkynningu frá ESA í september 2010. 

Þegar fjármálakreppan skall á Íslandi í byrjun október 2008 frestuðu verðbréfasjóðir innlausn á hlutdeildarskírteinum til þess að tryggja jafnræði milli eigenda hlutdeildarskírteina. Verðbréfasjóðirnir voru í framhaldinu gerðir upp og eigendur hlutdeildarskírteina fengu greitt andvirði hlutdeildarskírteina sinna. Þetta gerðist að hluta til með því að bankarnir keyptu eignir (að mestu leyti innlendar eignir) í eigu sjóðanna á viðskiptalegum forsendum. Eignirnar sem voru keyptar voru metnar á faglegan hátt enda þótt það hafi verið gert á óvissutímum. Verðið sem greitt var fyrir eignirnar var ákveðið af stjórnum nýju bankanna á grundvelli verðmats utanaðkomandi ráðgjafa (endurskoðunarfyrirtækja). 

Þann 27. júní tilkynnti ESA að þær ráðstafanirnar sem gripið var til við stofnun Íslandsbanka haustið 2008 hafi einnig verið í samræmi við ríkisstyrkjareglur EES samningsins. Þannig hefur tveimur veigamiklum óvissuþáttum er varða starfsemi Íslandsbanka verið eytt. 

Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka: 
„ Það er mikilvægt að komin sé niðurstaða í þessi tvö mál sem ESA hafði til rannsóknar vegna Íslandsbanka,en bankinn var fyrstur af viðskiptabönkunum þremur til að fá samþykki ESA fyrir stofnun og starfsemi bankans. Nú liggur einnig fyrir staðfesting á því að þær ráðstafanir sem bankinn greip til haustið 2008, þar sem hagsmunir um 9.000 viðskiptavina bankans voru hafðir að leiðarljósi, voru réttar.“ 

Til baka

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?
Afhverju ekki?
Hætta við

Ábending þín er notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Íslandsbanka. Vantar þig aðstoð sem krefst þess að við svörum þér má hafa samband við Þjónustuver Íslandsbanka.

Netspjall