Frétt
Islandsbanki hf.: Sátt við Samkeppniseftirlitið
Íslandsbanki hefur gert sátt við Samkeppniseftirlitið vegna rannsóknar þess á tiltekinni framkvæmd á greiðslukortamarkaði. Íslandsbanki var fyrstur málsaðila til að ná sáttum við Samkeppniseftirlitið en rannsóknin náði einnig til til Arion banka, Borgunar, Landsbankans og Valitors.Íslandsbanki hefur skuldbundið sig til að stuðla að breytingum á þeim markaði sem um ræðir, tryggja óhæði stjórnarmanna bankans í Borgun hf. og til greiðslu sektar, samtals 380 milljónir króna sem hafa þegar verið gjaldfærðar. Þá mun bankinn auka gagnsæi og vinna að hagræðingu í starfsemi bankans sem tengist kortaútgáfu.
Nánari upplýsingar veita:
Fjárfestatengill - Guðbjörg Birna Björnsdóttir, ir@islandsbanki.is og í síma 440 4752.
Upplýsingafulltrúi - Guðný Helga Herbertsdóttir, pr@islandsbanki.is og í síma 440 3678.
Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?