Frétt

Islandsbanki hf.: Íslandsbanki lýkur útboði á sértryggðum skuldabréfum

Íslandsbanki hf. lauk í dag útboði á sértryggðum skuldabréfum.

Óverðtryggði flokkurinn ISLA CB 19 var stækkaður um 840 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 5,63%.
Verðtryggði flokkurinn ISLA CBI 22 var stækkaður um 180 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 3,32%.
Verðtryggði flokkurinn ISLA CBI 26 var stækkaður um 980 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 3,15%.

Heildareftirspurn í útboðinu var 3.100 m.kr.

Stefnt er að töku til viðskipta í Nasdaq Iceland þann 7. desember næstkomandi.

Á árinu 2016 hefur Íslandsbanki gefið út sértryggð skuldabréf fyrir 20.000 m.kr. sem er í samræmi við útgáfuáætlun ársins sem hljóðaði upp á 20.000-30.000 m.kr. heildarútgáfu.

Heildarfjárhæð útistandandi sértryggðra skuldabréfa Íslandsbanka verður að nafnverði 64.700 m.kr.

Til baka

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?
Afhverju ekki?
Hætta við

Ábending þín er notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Íslandsbanka. Vantar þig aðstoð sem krefst þess að við svörum þér má hafa samband við Þjónustuver Íslandsbanka.

Netspjall