Frétt

Islandsbanki hf.: Ársuppgjör 2017 birt miðvikudaginn 14. febrúar 2018

Íslandsbanki mun birta ársuppgjör 2017 fyrir opnun markaða miðvikudaginn 14. febrúar 2018.

Símafundur með fjárfestum á ensku

Markaðsaðilum er boðið upp á símafund kl. 9.30 á ensku. Farið verður yfir helstu atriði í íslenskum efnahagsmálum og afkomu bankans. Vinsamlegast skráið ykkur á símafundinn með að senda póst á ir@islandsbanki.is. Fundargögn og aðgangsorð vegna símafundar verða send út til skráðra aðila fyrir fundinn.

Afkomufundur á íslensku

Síðar þann dag kl. 11.30 munu Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka, og Jón Guðni Ómarsson, fjármálastjóri, kynna afkomu bankans á opnum fjárfestafundi og svara fyrirspurnum. Fundurinn fer fram á íslensku og er haldinn á 9. hæð höfuðstöðva bankans að Hagasmára 3. Boðið verður upp á veitingar.

Skráning á fundinn fer fram á vef fjárfestatengsla og þar er jafnframt að finna allar upplýsingar tengdar uppgjörinu www.islandsbanki.is/fjarfestatengsl.

Upplýsingar um fjárhagsdagatal bankans og þögul tímabil má finna hér: http://www.islandsbanki.is/um-islandsbanka/fjarfestatengsl/fjarhagsdagatal/.

Til baka

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?
Afhverju ekki?
Hætta við

Ábending þín er notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Íslandsbanka. Vantar þig aðstoð sem krefst þess að við svörum þér má hafa samband við Þjónustuver Íslandsbanka.

Netspjall