Frétt

MP banki annast viðskiptavakt með sértryggt skuldabréf ISLA CB 15

Íslandsbanki hf. hefur samið við MP banka um að hinn síðarnefndi annist viðskiptavakt með ISLA CB 15, útgefnum sértryggðum skuldabréfum (e. Covered Bonds) Íslandsbanka. Í því felst að setja fram daglega kaup- og sölutilboð í bréfin, áður en markaður er opnaður, að lágmarki ISK 20.000.000 króna að nafnverði.

MP banki mun endurnýja tilboð sín innan 15 mínútna frá því að tilboði hefur verið tekið. Tilboðin gilda aðeins innan dags og hámarksmunur kaup- og sölutilboða ákvarðast af verði gildra tilboða og má vera 0,8%

Eigi viðskiptavakt MP banka viðskipti á einum degi fyrir 60.000.000 kr. að nafnvirði er honum heimilt að hætta framsetningu tilboða fram á næsta viðskiptadag.

Viðskiptavaktin gildir frá og með fimmtudeginum 25. október 2012.

Til baka

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?
Afhverju ekki?
Hætta við

Ábending þín er notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Íslandsbanka. Vantar þig aðstoð sem krefst þess að við svörum þér má hafa samband við Þjónustuver Íslandsbanka.

Netspjall