Frétt

Islandsbanki hf.: Niðurstaða útboðs sértryggðra skuldabréfa

Íslandsbanki hf. lauk í dag útboði á sértryggðum skuldabréfum.

Heildareftirspurn í útboðinu var 16.590 m.kr.

Verðtryggði flokkurinn ISLA CBI 22 var stækkaður um 4.420 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 3,05%. Heildartilboð voru 4.420 m.kr. á 3,05%. Heildarstærð flokksins verður 17.340 m.kr. eftir útgáfuna.

Verðtryggði flokkurinn ISLA CBI 24 var stækkaður um 4.060 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 3,02%. Heildartilboð voru 4.100 m.kr. á bilinu 3,02% - 3,05%. Heildarstærð flokksins verður 14.000 m.kr. eftir útgáfuna.

Samþykkt tilboð í nýjan verðtryggðan flokk ISLA CBI 30 voru samtals 6.160 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 2,85%. Heildartilboð voru 8.070 m.kr. á bilinu 2,78% - 3,00%.
Til viðbótar verður flokkurinn stækkaður um 960 milljónir vegna verðbréfalán til viðskiptavaka. Heildarstærð flokksins verður 7.120 m.kr. eftir útgáfuna.

Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta í Nasdaq Iceland þann 30. maí næstkomandi.

Það sem af er ári 2017 hefur Íslandsbanki gefið út sértryggð skuldabréf fyrir 28.320 m.kr. Heildarfjárhæð útistandandi sértryggðra skuldabréfa Íslandsbanka að afloknu útboði verður að nafnverði 93.020 m.kr.

Til stendur að nýta stærstan hluta útgáfunnar til að endurfjármögnunar á útistandandi veðtryggðu skuldabréfi bankans, upphaflega útgefnu til Eignasafns Seðlabanka Íslands.

Útgáfuáætlun bankans á sértryggðum bréfum fyrir árið 2017 verður í kjölfarið tekin til endurskoðunar með uppfærslu í huga.

Til baka

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?
Afhverju ekki?
Hætta við

Ábending þín er notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Íslandsbanka. Vantar þig aðstoð sem krefst þess að við svörum þér má hafa samband við Þjónustuver Íslandsbanka.

Netspjall