Frétt

Íslandsbanki hf. lýkur útboði sértryggðra skuldabréfa

Íslandsbanki hf. hefur í dag lokið útboði á tveimur verðtryggðum flokkum sértryggðra skuldabréfa. Flokkurinn ISLA CBI 22 var boðinn út og seldust þar 640 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 3,23%. Flokkurinn ISLA CBI 26 var einnig boðinn út og seldust þar 2.340 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 3,21%.

Heildareftirspurn í útboðinu var 3,5 ma. kr. en 85% tilboða var tekið. Heildarstærð ISLA CBI 22 að loknu útboði verður 4,96 ma. kr. og heildarstærð ISLA CBI 26 verður 9,58 ma. kr. Heildarupphæð útistandandi sértryggðra skuldabréfa Íslandsbanka verður að nafnverði 55,84 ma. kr. að loknu útboði. 

Stefnt er að töku bréfanna til viðskipta í Nasdaq Iceland þann 15. febrúar

Til baka

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?
Afhverju ekki?
Hætta við

Ábending þín er notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Íslandsbanka. Vantar þig aðstoð sem krefst þess að við svörum þér má hafa samband við Þjónustuver Íslandsbanka.

Netspjall