Frétt

Islandsbanki hf.: Íslandsbanki lýkur útboði á sértryggðum skuldabréfum

Íslandsbanki hf. lauk í dag útboði á tveimur flokkum sértryggðra skuldabréfa.

Óverðtryggði flokkurinn ISLA CB 19 var stækkaður um 340 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 5,70%.

Verðtryggði flokkurinn ISLA CBI 26 var stækkaður um 1.140 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 3,13%.

Heildareftirspurn í útboðinu var 1.480 m.kr.

Stefnt er að töku til viðskipta í Nasdaq Iceland þann 24. október næstkomandi.

Það sem af er ári 2016 hefur Íslandsbanki gefið út sértryggð skuldabréf fyrir 13.720 m.kr. Heildarfjárhæð útistandandi sértryggðra skuldabréfa Íslandsbanka verður að nafnverði 62.420 m.kr.

Til baka

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?
Afhverju ekki?
Hætta við

Ábending þín er notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Íslandsbanka. Vantar þig aðstoð sem krefst þess að við svörum þér má hafa samband við Þjónustuver Íslandsbanka.

Netspjall